Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Við höldum áfram að ræða þetta frumvarp, hálendisþjóðgarðsfrumvarpið, sem hefur tekið óvæntum vendingum hér í vetur, heldur betur. Ef við lítum nú aðeins yfir málið í örstuttu máli í upphafi ræðu minnar þá horfir þetta svona við á einfaldasta háttinn: Það er mynduð ríkisstjórn seint á árinu 2017, fyrir tæpum fjórum árum. Í stjórnarsáttmála þeirrar ríkisstjórnar er kveðið á um það að ríkisstjórnarflokkarnir allir, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn, séu sammála um það að stofna skuli hálendisþjóðgarð. Síðan líður tíminn og þetta frumvarp birtist svo hér í vetur eftir vinnu í ráðuneytinu og ætlað samráð, sem margir umsagnaraðilar í málinu núna kvarta yfir og segja að hafi verið nánast ekkert eða að það hafi verið sýndarsamráð vegna þess að ekki hafi verið hlustað á þá aðila sem málið varðaði, t.d. sveitarstjórnirnar og ýmsa aðila sem nýta hálendið. Þetta samráð, sem hæstv. ráðherra kallar svo, var kannski helst fólgið í því að hann fór fundaherferð um landið og hélt þar fyrirlestur yfir heimamönnum og var svo fljótlega horfinn á braut. Vissulega hefur hæstv. ráðherra heyrt áhyggjur heimamanna en a.m.k. hlustaði hann ekki nægilega á áhyggjurnar vegna þess að þær komu ekki fram í frumvarpinu þegar það birtist.
Hvar voru þá hinir stjórnarflokkarnir meðan á þessari atburðarás stóð sem tók þennan tíma, einhver tvö ár? Hvar voru þá hinir stjórnarflokkarnir? Voru þeir að hlusta? Höfðu þeir áhyggjur af þessu? Þeir voru búnir að samþykkja þennan stjórnarsáttmála. Höfðu þeir hönd í bagga um hvernig frumvarpið myndi líta út, að þeir væru tryggðir fyrir því að þarna væru ekki einhverjir hlutir sem þeir gætu alls ekki sætt sig við? Nei, menn eru gjörsamlega sofandi allan þennan tíma. Menn héldu að hugsanlega væri hægt að þröngva þessu í gegn þótt einhverjir væru að tuða yfir því. Þeir fylkja liði, herra forseti. Í fararbroddi eru Vinstri græn, friðunarflokkurinn sem hefur gengið um landið allt þetta kjörtímabil og friðað allt sem auga á festir. Þegar þetta stóra mál kemur fram og fylkingin geysist fram á völlinn, Vinstri græn, grá fyrir járnum, heyra þau einhvern óm og þá kemur einn helsti forystumaður þeirra síðustu áratugina fram, hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, með allt liðið fyrir aftan sig, sigurinn vís, enginn í hans liði segir orð, og hann kallar þann hóp, sem hann hélt að væri lítill og vanbúinn, örlítinn grenjandi minni hluta. Síðan þegar fylkingarnar mætast kemur í ljós að þetta var ekki örlítill grenjandi minni hluti heldur breiðfylking landsmanna, aðallega fólks utan af landi, sveitarfélaganna, útivistarsamtakanna, ferðafélaganna, ferðasamtakanna, ferðaþjónustuaðilanna, bænda, allra þeirra sem höfðu í áratugi og jafnvel um aldir nýtt hálendið í þágu lands og þjóðar, til beitar, til útivistar, til veiða, til ferðalaga. Þegar þessi breiðfylking birtist frammi fyrir sveit Vinstri grænna þá bitu þeir í skjaldarrendur. En þegar foringinn núna í vetur, í desember, leit um öxl, þá sá hann að liðsaflinn sem hann taldi að væri fyrir aftan sig var horfinn á braut, herra forseti. Hann var horfinn á braut. Hvaða liðsmenn voru það sem flúðu af vettvangi? Það voru liðsmenn og fylkingar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það sást hvergi til þeirra. Þetta gerðist í desember síðastliðnum, herra forseti. Þeir stukku af vettvangi þegar þeir sáu landsmenn mótmæla hástöfum þessu máli. Þessi örlitli minni hluti. Fundu upp á því snilldarbragði að þeir hefðu sett fyrirvara og kepptust hver um annan þveran til að nefna þá, að það væri þetta og hitt og í fjórða lagi og fimmta og sjötta. Það vantaði ekki fyrirvarana þá en það hafði ekki sést til þeirra áður. Þetta hefur verið ögurstund, herra forseti, í þessari orrustu og niðurstaðan liggur hér fyrir.
Til að fá þá aftur á vettvang, til að freista þess að fá þessa liðsmenn, þessa heri, þessar fylkingar, aftur í lið með sér og blása til næstu orrustu var saumaður saman hér í nefndaráliti meiri hlutans texti sem ég ætla að lesa:
„Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið sem verði byggt á þeirri vinnu sem hér hefur verið rakin.“
Þeir ætla sér að fara í aðra orrustu og þeir eru búnir að dagsetja hana. Dagsetningin er eftir næstu kosningar. Þá ætla þeir að mæta og þeir sem stukku af þessum vettvangi síðast eru að gefa loforð um að þeir muni mæta líka. Þetta eru ráðagerðir, herra forseti, um aðra tilraun til sigurs. Þetta er ávísun á það að málið mun halda áfram. Ef þessir flokkar fá umboð til þess í næstu kosningum og við sjáum hérna óbreytt stjórnarmynstur þá er þetta naglfest loforð þessara flokka, að málið mun koma aftur fram strax næsta vetur. Vinstri græn telja sig hafa tryggt mætingu til þeirrar orrustu.
Allan tímann, meðan á þessari atburðarás stóð, hefur Miðflokkurinn staðið vaktina, ekki vikið úr varðstöðu sinni, ekki einn einasta dag, og staðið með þeim aðilum sem telja að hér sé allt of langt gengið í mörgum efnum, fjölmörgum efnum, fyrst og fremst, eins og við rekjum í minnihlutaáliti okkar og ég ætla ekki að lesa hér upp, herra forseti, þótt ég gæti það, að við sem þjóð getum nýtt orkuauðlindirnar áfram á skynsamlegan og umhverfisvænan hátt. Vegna þess að þetta er græn orka, beislun fallvatna er græn orka og við verðum að geta haldið áfram að nýta þau skynsamlega. Einnig jarðvarmann, sem er líka á þessu svæði. Við getum ekki tekið meira en þriðjung landsins undir þjóðgarð þar sem yrði lokað á möguleikann, algerlega lokað á möguleikann, til frekari orkunýtingar á svæðinu. Við getum það ekki.
Svo að ég tali aftur um þessa herramenn sem fóru reyndar aldrei í orrustuna en hugðust taka þátt í henni þá má líkja þessu við það að Vinstri græn hafi fengið tékka í hendurnar frá þeim sem var óútfylltur. Hann var undirritaður í formi stjórnarsáttmálans. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur undirrituðu það loforð að þetta yrði að veruleika, hálendisþjóðgarður, á kjörtímabilinu. Þannig að Vinstri græn voru með undirritaðan tékka í hendinni og þurftu bara að fylla hann út. Síðan þegar þeir ætluðu að innleysa tékkann þá neituðu hinir að verða við því. Það var talið alvarlegt brot hérna á árum áður þegar menn voru með tékka sem voru innstæðulausir og varðaði jafnvel við einhver ákvæði laga. Það þótti ekki merkilegt þegar menn gáfu út tékka sem engin innstæða var fyrir.
En það átti auðvitað ekki að koma Framsóknarmönnum og Sjálfstæðismönnum á óvart að sveitarfélögin kærðu sig ekki um að skipulagsvaldið væri tekið af þeim bara sisvona og fært í hendur ráðherra eða einhverri stofnun í Reykjavík. Menn hafa fengið sig svolítið fullsadda af því að völdin séu færð í síauknum mæli hingað á höfuðborgarsvæðið og ekkert óeðlilegt við það að sveitarstjórnirnar hringinn í kringum landið hafi risið upp og andmælt. Átti það að koma Framsóknarflokknum á óvart? Eða voru menn svo æstir í að setjast í ráðherrastóla á sínum tíma, 2017, að menn skrifuðu bara undir þetta til að fá sæti við ríkisstjórnarborðið? Ég er ansi hræddur um það, herra forseti. Vonuðu að þetta myndi allt fara vel, vonuðu kannski að þessa hugmynd myndi daga uppi, vonuðu að Vinstri græn myndu ekki óska eftir því að þessi ávísun yrði greidd, innleyst.
Það er svolítið barnalegt, herra forseti, ég verð að segja nákvæmlega eins og er. Mér þykir það barnalegt. Framsóknarflokkurinn var flokkur landsbyggðarinnar og bænda hér áður og þeir ætluðu að taka skipulagsvaldið af fjölmörgum sveitarfélögum hringinn í kringum landið. Átti það að koma Sjálfstæðismönnum á óvart að hálendisþjóðgarður myndi takmarka orkunýtingu á svæðinu þegar þeir skrifa undir stjórnarsáttmálann 2017? Gat þeim ekki verið fullljóst að þetta yrðu afleiðingarnar? Eða var löngun þeirra til að sitja við ríkisstjórnarborðið öllu öðru yfirsterkari?
Þess vegna er það, herra forseti, tvískinnungsháttur að koma núna í lok kjörtímabilsins og segjast hafa haft svo og svo marga fyrirvara við málið en skrifa samt undir þetta álit. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn skrifa undir þetta álit um það að málið verði lagt fram að nýju, að ráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið sem verði byggt á þeirri vinnu. Þeir halda áfram með málið.
Þetta er staðreynd málsins og menn geta ekkert hlaupist á brott frá henni þótt þeir gjarnan vilji. Þetta mál mun birtast að nýju ef ríkisstjórnin heldur velli í næstu kosningum. Eina leiðin til að koma í veg fyrir það er að styrkja Miðflokkinn. Við höfum sýnt það í þessu máli allan tímann að við munum ekki fallast á slíkan þjóðgarð sem á að ná yfir þriðjung landsins, koma í veg fyrir alla meiri háttar orkunýtingu á svæðinu, taka skipulagsvaldið frá sveitarfélögunum, fela ráðherra óhóflegt vald til þess að stjórna svæðinu eftir eigin höfði nánast. Hann þarf ekki einu sinni að hlusta á stjórn þjóðgarðsins eða umdæmisstjórninar. Hann getur með reglugerð eða ákvörðun bara hunsað margháttaðar ákvarðanir sem þessir aðilar taka. Hann fær allt of mikið vald samkvæmt þessu frumvarpi.
Ég ætla ekki að lesa allar þær umsagnir sem greina frá því nákvæmlega hvernig því er háttað eða þær umsagnir sem greina frá því nákvæmlega hvernig lokað verði fyrir orkunýtingu á hálendinu. Það kemur fram í tugum umsagna hvernig ferðafrelsi hefur verið takmarkað á svæði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem stjórn þjóðgarðsins hefur lokað vegum og sett takmarkanir á ferðir í þjóðgarðinum.
Nei, herra forseti, Miðflokkurinn er umhverfissinnaður flokkur en við viljum ekki slíkar öfgar sem í þessu frumvarpi koma svo berlega í ljós. Miðflokkurinn vill ekki binda hendur komandi kynslóða til að njóta þeirrar grænu orku sem þetta land hefur upp á að bjóða og Miðflokkurinn telur að fólk eigi að geta ferðast um landið með sem minnstum afskiptum stjórnvalda, fyrirmælum frá ríkisvaldinu og óeðlilegum kvöðum frá miðstýrðum yfirvöldum eins og gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi.