lýðheilsustefna.
Herra forseti. Ég tek undir orð hv. þingmanns. Við í þingflokki Samfylkingar styðjum málið þrátt fyrir að það komi ófullgert til þingsins. Auðvitað styðjum við lýðheilsustefnu en það var í rauninni átakanlegt að heyra í gestum sem mættu fyrir nefndina og töluðu um algjört samráðsleysi heilbrigðisráðuneytisins við gerð frumvarpsins. Þá erum við að tala um lykilaðila þegar kemur að lýðheilsu, eins og sveitarfélögin, Samband íslenskra sveitarfélaga, sem sögðu að ekkert samráð hefði verið haft, íþróttafélögin, æskulýðsfélögin o.s.frv. Við verðum að gera betur, herra forseti, þegar gerð er stefna til næstu tíu ára. Við verðum að vera í samráði við þá sem eiga að framfylgja stefnunni. Við hljótum að geta gert betur.