lýðheilsustefna.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. velferðarnefnd og Alþingi fyrir breiðan stuðning við þetta mikilvæga mál. Hér er um að ræða skýra og markvissa stefnu til að efla og bæta lýðheilsu sem er eitt brýnasta hagsmunamál samfélagsins, ekki síst sú sýn að við tökum tillit til lýðheilsusjónarmiða í allri áætlanagerð stjórnvalda, sem er mjög mikilvægt. Hér höfum við í höndunum traustan grunn og ákveðna sátt, breiða sátt, um hann. Ég vil árétta við þessa atkvæðagreiðslu að það er sameiginlegur skilningur allra aðila að það sé afar mikilvægt að eiga breitt samráð við þau sem fara með framkvæmd lýðheilsumála varðandi einstakar áætlanir sem byggðar verða á þessum grunni. En nú, virðulegur forseti, höfum við þennan grunn til ársins 2030 og því ber að fagna.