þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Forseti. Hér er fínasta mál. Það er ýmislegt annað sem maður myndi vilja bæta við það. En þetta er mjög gott skref og ég vil vekja sérstaka athygli á þeim hluta sem fólk hefur haft áhyggjur af, að það sé svo erfitt að gera greinarmun á því hvort fólk er í þingstörfum eða ráðherrastörfum að tala við kjósendur eða ekki. Það er ekkert mál að gera þann greinarmun. Í kosningabaráttu er einfaldlega talað við ráðherra sem frambjóðendur. Ef það er mjög skýrt að um embættisverk sé að ræða er ekkert mál að benda á það og útskýra. Grunnreglan er að fólk í kosningabaráttu er að tala við kjósendur fyrir næsta kjörtímabil. Ekki blanda saman verkum okkar sem þingmanna á þeim tíma nema það sé mjög augljóst að svo sé. Og þá er því helst beint til ráðherra: Ekki fara í ferðir í framhaldsskóla á Snæfellsnesi og mæta síðan um kvöldið í Ólafsvík á kosningafund og rukka þá ráðuneytið.