fasteignalán til neytenda.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að benda á að breytingartillagan sem ég er með snýr eiginlega eingöngu að því að hjálpa þeim sem eru bundnir í verðtryggðum lánum til þess að fá skuldbreytingu lána sinna án þess að þurfa að fara í greiðslumat og án þess að bera hærri greiðslubyrði í kjölfarið, í rauninni að vera jafnsettir eftir sem áður nema losna við verðtrygginguna ef þeir kjósa svo. Það er bara sanngirnis- og réttlætismál og í raun og veru eitt pínulítið skref í áttina að því að koma fólki út úr þeim klyfjum verðtryggingar sem margir eru í og kæra sig ekki um.