fullnusta refsinga.
Virðulegi forseti. Ég ætla að greiða atkvæði með þessu máli en tek þó undir áhyggjur og varnaðarorð hv. þingmanns sem talaði hér á undan. Mér finnst það í grundvallaratriðum skrýtið að við séum að ákveða hvaða refsingum er beitt út frá því að biðlistar séu til staðar. Mér finnst það ekki vera rétt forsenda. Amennt vil ég líka segja að við þurfum svolítið að taka okkur saman í andlitinu þegar kemur að fangelsismálakerfinu okkar. Það er undirfjármagnað. Hér eru stundum haldnar góðar ræður um betrun og mikilvægi þess að hjálpa fólki að komast aftur út í lífið þannig að það fari ekki á sömu braut. En það þarf fjármagn. Við búum í samfélagi þar sem við þurfum að sinna ákveðnum skyldum. Það þýðir að við þurfum stundum að þjóna og sinna fólki sem samfélaginu er ekki sérstaklega vel við og jafnvel bara beinlínis illa við. En það er hlutverk okkar, það er ábyrgðarhlutverk okkar. Það þarf að hætta að trassa þennan málaflokk almennt. Þetta frumvarp (Forseti hringir.) er einkenni þess trassaskapar og við það geri ég athugasemd en ég styð málið því að ég tel það þó vera til bóta, alla vega í bili.