póstþjónusta og Byggðastofnun.
Virðulegur forseti. Ég vil í að ég held öllum atriðum taka undir ræðu hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson. Ég fagna því að þessi lagfæring sé að ganga í gegn núna sem snýr að því ákvæði sem dags daglega er kennt við að sama verð sé fyrir pakka upp að 10 kílóum um land allt.
En það er annað atriði sem fylgir með við vinnslu þessa máls; það upplegg að nefndin feli ráðherra að fara af stað með mjög ígrundaða og djúpa greiningu á því með hvaða hætti við getum náð aukinni hagkvæmni og betri þjónustu í póstumhverfinu heilt yfir. Ég vil bara fagna því að góð sátt hafi náðst um það og hlakka til þeirrar vinnu sem er áætlað að liggi fyrir í lok október frekar en lok nóvember 2021.