póstþjónusta og Byggðastofnun.
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um mál sem ég held að sé mjög mikilvægt. Mikilvæg vinna hefur farið fram í kringum afgreiðslu málsins í umhverfis- og samgöngunefnd og málið er í raun orðið þríþætt með breytingartillögum nefndarinnar. Í fyrsta lagi er verið að flytja stjórnsýslu og eftirlit með póstþjónustu frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar. Það er viðfangsefni frumvarpsins. Breytingartillögur nefndarinnar bæta svo við greiningu á tækifærum til úrbóta á póstmarkaði og breytingu á gjaldskrá alþjónustu. Þegar allt þetta leggst saman tel ég að markmið póstlaga um að tryggja góða póstþjónustu um allt land og eðlilegt samkeppnisumhverfi geti náðst.