151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

póstþjónusta og Byggðastofnun.

534. mál
[13:40]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla rétt að koma hér upp til að skýra í hverju þetta felst. Við afgreiðslu breytingartillögunnar var gert ráð fyrir að endurskoðun gjaldskrár gæti tekið gildi 1. september. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ferlið sem fara þarf í gang í stjórn Íslandspósts og síðan hjá Póst- og fjarskiptastofnun, eða Byggðastofnun, taki lengri tíma. Því gengur þessi tillaga út á að fresta ákvörðuninni þannig að gjaldskrá taki gildi eigi síðar en 1. nóvember.