umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Herra forseti. Mig langar að nefna í þessu samhengi, og hefði átt að koma upp undir liðnum um atkvæðagreiðsluna, að frumvarpið felur í sér lögfestingu efnisákvæða fjögurra tilskipana Evrópuþingsins og ráðsins. Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu hafa tilskipanirnar ekki verið teknar upp í EES-samninginn. Engu að síður eru efnisákvæði tilskipananna lögfest með frumvarpinu. Það sem mig langar að benda á hér, með leyfi forseta, er það sem segir í nefndaráliti meiri hluta:
„Meiri hlutinn beinir því jafnframt til ráðuneytisins að fylgjast með framgangi gerðanna á þeim vettvangi og bregðast við ef þurfa þykir, svo sem með frestun gildistöku laganna, sem …“ (Gripið fram í: Þú ert í næsta máli.)
Er ég í næsta máli? Sko til, þá sjaldan að maður mætir á réttum tíma. [Hlátur í þingsal.] Það var ýtt við mér hér í hliðarsal og ég ætlaði að rjúka upp undir næsta máli, taldi mig vera að missa af atkvæðagreiðslu. Ég kem bara upp aftur, en þið eruð búin að fá nasaþefinn af því sem þá gerist. [Hlátur í þingsal.]