sveitarstjórnarlög og tekjustofnar sveitarfélaga .
Herra forseti, Samfylkingin mun styðja málið. Það eru hins vegar mjög mikil vonbrigði að stjórnarliðar skuli hafa heykst á því að halda inni ákvæði um lágmarksfjölda sveitarfélaga eins og Samband íslenskra sveitarfélaga var þó búið að álykta um og fyrir því eru góð rök: Í fyrsta lagi réttur íbúa til þjónustu, í öðru lagi rekstrarhæfi og síðast en ekki síst samkeppnishæfni sveitarfélaga vegna þess að eftir sem áður verður ein birtingarmyndin sú að örlítil sveitarfélög munu þétta byggð við bæjarmörk annarra sveitarfélaga án þess að veita nokkra þjónustu og senda sitt fólk þangað. Og þetta er auðvitað sérstaklega erfitt þegar ríkið kemur þannig fram við sveitarfélögin að borga ekki einu sinni það sem þarf að borga fyrir rekstur sem er sinnt fyrir ríkið.