sveitarstjórnarlög og tekjustofnar sveitarfélaga .
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um frumvarp sem er liður í því að framfylgja ályktun Alþingis nr. 21/150, um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019–2033, einkum ákvæðinu um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga. Frumvarpið hefur vissulega tekið þónokkrum breytingum í meðförum umhverfis- og samgöngunefndar og byggist sú vinna á samtölum við umsagnaraðila og hugmyndum minni sveitarfélaga um aðra leið að markmiðinu en lagt var upp með. Ég held að þetta sé býsna góður áfangi á þeirri leið sem mörkuð var í ályktuninni sem við samþykktum á síðasta þingi. Í þessari tillögu er byggt á hugmyndum minni sveitarfélaga án þess þó að fylgja þeim út í ystu æsar. En um þetta virðist allþokkaleg sátt meðal sveitarfélaga.