loftslagsmál.
Herra forseti. Ég ætla að greiða atkvæði með þessu máli og breytingartillögum meiri hlutans enda á ég aðild að samkomulagi um afgreiðslu þess með þeim hætti. Ég verð hins vegar að geta þess að óháð því hver markmiðin eru þá er eitthvað skringilegt í mínum huga að lögfesta markmið af þessu tagi, ekki síst töluleg markmið, einfaldlega út frá því að verið er að lögfesta einhverja niðurstöðu sem er háð mörgum óvissuþáttum. Í lögum á fyrst og fremst að setja fram einhverjar hátternisreglur, eitthvað er bannað eða eitthvað er skylt að gera eða eitthvað þess háttar, en markmið eiga ekki heima í lagatexta heldur einmitt í stefnuyfirlýsingum, þingsályktunartillögum eða einhverju slíku. En í ljósi þess að þetta er partur af samkomulagi um afgreiðslu þá styð ég þetta og tel svo sem engan skaða af þessu að öðru leyti en því að mér finnst þetta ekki áferðarfalleg lagasetning sem slík.