151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

loftslagsmál.

711. mál
[14:30]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hér er lagt til að lögfest sé markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030, eins og stendur í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að sé stefna Íslands. Það hvernig ljósataflan lítur út bendir til þess að ríkisstjórnin treysti sér ekki til að lögfesta eigin markmið sem sjálfstætt markmið Íslands heldur kjósi frekar að bíða eftir niðurstöðu úr viðræðum við Evrópusambandið þar sem væntanlega er vonast eftir að fá lægri prósentutölu úthlutað. Það að fella þessa breytingartillögu mína birtir í hnotskurn metnaðarleysi stjórnarinnar í loftslagsmálum.