151. löggjafarþing — 113. fundur, 12. júní 2021.
stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
625. mál
Forseti. Ég kem hér upp til að fagna síðustu orðum hæstv. ráðherra um að ríkið hafi tryggt sér fullt eignarhald á Auðkenni. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði höfum sett um það skilyrði við vinnslu þessa máls. Sjálfur hef ég lagt fram frumvarp um að ríkið gefi út örugg, opinber rafræn skilríki, þannig að ég fagna því mjög að það sé í höfn.