151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[14:46]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér á að setja í lög með varanlegum hætti heimild til að veita opinberri stofnun, Seðlabanka Íslands, víðtækar heimildir til að leggja höft á gjaldeyrisviðskipti. Krafist er samþykkis ráðherra en ekki er nauðsynlegt að afla samþykkis Alþingis, eftir því sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Sú aðgerð að lögfesta slíka varanlega heimild hefur fælandi áhrif á erlenda fjárfestingu sem mun reynast okkur dýrt því að erlend fjárfesting skiptir miklu máli fyrir uppbyggingu og hagsæld í landinu. Slíka miðstýringu og haftastjórn sem hér er boðið upp á ber að varast.