gjaldeyrismál.
Herra forseti. Vinstrihreyfingin – grænt framboð styður þetta frumvarp. Þær breytingartillögur sem gerðar eru við meðferð frumvarpsins snúa að því að taka á þeim áhyggjuefnum sem komu upp við vinnslu málsins, þ.e. að aðkoma þingsins væri of lítil. Það er gert, það er mikilvægt og mun til framtíðar skipta okkur miklu máli. Þau atriði sem tekið er á í frumvarpinu eru okkur öllum í fersku minni. Við höfum nýlega þurft að beita slíkum höftum. Það er tekið sérstaklega fram í nefndaráliti með frumvarpinu að þeim skuli beitt í algerri neyð, þá í samráði við ráðherra og í samráði við þingið. Það getur ekki verið skýrara.