gjaldeyrismál.
Virðulegi forseti. Við höfum í áratugi haft heimildir í lögum til þess að beita því varúðartæki að setja á gjaldeyrishöft. Ef við lítum enn lengra aftur í tímann, kannski aftur til miðrar síðustu aldar, eigum við örugglega dæmi þess að höftum hafi verið beitt þegar menn treystu sér ekki til að taka á undirliggjandi vanda í efnahagsmálum. Engu slíku er til að dreifa í þessu máli. Hér er einfaldlega verið að tryggja að í lögum séu til staðar skýrar reglur, eins og við höfum ávallt haft — eins og við höfðum reyndar í fjármálahruninu en þá þurfti þingið að herða á reglunum — til þess að verja heimilin, verja rekstur fyrirtækja, verja þjóðarhag ef þær alvarlegu aðstæður koma upp að gjaldeyriskreppa skapast í landinu. (Forseti hringir.) Það er ekki verið að boða neitt slíkt. Það er verið að tryggja varanlega umgjörð. Það er allt of mikið sagt um það að ríkisstjórnin ætli sér að beita einhverjum slíkum tækjum. Það er þvert á móti, við höfum verið að afnema höft og safna gjaldeyri mörg undanfarin ár.