151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[14:54]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er gott mál sem almennt er rík samstaða um að klára. Við erum að sameina fjóra lagabálka varðandi kosningar, gera þá að einum, bæta regluverkið, auka rétt kjósenda til aðgengis að kosningum og tryggja að í framhaldinu sé hægt að fara í endurbætur sem endurspegla kosningar til Alþingis, forsetakosningar, þjóðaratkvæðagreiðslur og sveitarstjórnarkosningar. Þetta verður þannig heildstæð nálgun varðandi bættari framkvæmd og uppfærslur. Um jöfnun atkvæða, það sem út af stóð, verður lögð fram breytingartillaga sem atkvæði verða greidd um, þannig að við getum farið heildstætt í þessar breytingar.

Varðandi það sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason nefndi hér áðan, og við vorum í umræðum um í gær, fór ég rangt með eitt mál sem ég vil leiðrétta. Það náðist ekki inn þessi breyting varðandi aðstoðina, um orðalagið. Þetta er því opnari heimild sem sannarlega var það sem stefnt var að og lagt fram og samþykkt. (Forseti hringir.) En mótstaða þeirra var á endanum þannig að þeir spiluðu því þannig út að þeir vildu póstkosningarnar frekar út en að verið væri að hrófla við aðstoðinni. (Forseti hringir.) Aðstoðin er því áfram eins og stefnt var að, sem þýðir að fatlaðir — ekki bara þeir sem eru fatlaðir vegna sjónskerðingar eða vegna þess að höndin sé ónothæf, heldur fatlaðir almennt — hafi ríkari aðgang (Forseti hringir.) og tækifæri til að kjósa sem annars væri ekki. Til dæmis gætu daufdumbir ekki fengið þessa aðstoð á kjörstað ef þeir hafa ekki þann sem þeir (Forseti hringir.) treysta best með sér, sem getur líka aukið á kosningarverndina. Sýslumenn geta farið á þessi vistheimili (Forseti hringir.) í dag og setið yfir fólki þannig að það er alveg vafaatriði með öryggið. Við munum fylgjast með þessu, fá skýrslu til Alþingis til að skoða framkvæmdina eftir sveitarstjórnarkosningar.

(Forseti (GBr.): Forseti biður hv. þingmenn að virða knöpp tímamörk. Þeir hafa eina mínútu.)