kosningalög.
Forseti. Ég vil nefna hér tvær breytingartillögur sem við erum með. Annars vegar er það tillaga frá mér um að ekki þurfi að kæra sig inn á kjörskrá, að það sé bara fellt burt, að fólk haldi atkvæðarétti sínum ef það er með íslenskt ríkisfang. Hins vegar er það sameiginleg breytingartillaga, frá mér, Viðreisn og Samfylkingunni, um að fjölga jöfnunarsætum og að skiptingin á jöfnunarsætunum verði ekki háð því að tvöfaldur munur sé á atkvæðarétti þannig að skiptingin verði eins jöfn og hægt er að hafa hana. Þetta er augljóst lýðræðismál og ég vonast eftir stuðningi við það.