151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[14:57]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um frumvarp til kosningalaga sem er mjög mikilvægt mál. Þar er verið að sameina lagabálka um kosningar, hvort sem þær eru til Alþingis eða sveitarstjórna eða forsetakosningar. Lagðar voru til töluvert miklar breytingar á framkvæmdinni í frumvarpinu eins og það kom fram. Niðurstaða nefndarinnar var að fara frekar varlega í breytingar og leggja fyrst og fremst áherslu á þær breytingar sem góð samstaða er um, stíga kannski minni skref. Ég vil þó vekja sérstaka athygli á því að það sem einkum olli óöryggi nefndarmanna um breytingar var aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu og svo aðgengi þess fólks sem getur átt erfitt með að greiða atkvæði sjálft og þarf aðstoð á kjörstað. (Forseti hringir.) En þarna eru bráðabirgðaákvæði sem þýðir að þessi mál verða skoðuð betur á næsta ári.