151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[15:02]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég er hingað komin til að minna þingheim á að hér liggur frammi breytingartillaga sem er gagnorð en myndi skila kjósendum á Íslandi réttlæti sem verulega hefur vantað upp á. Við þekkjum söguna um misjafnt atkvæðavægi hér á landi. Jafnt vægi atkvæða hefur aldrei náðst í þingkosningum og markmiðið með tillögunni er að jafna leikinn þar. Um grundvallarmál er að ræða, grundvallarkröfu, grundvallarpólitík, réttlætismál, mannréttindamál og ég hvet þingmenn eindregið til að styðja þessa tillögu og verja þannig mannréttindi fólksins í landinu því að það eru þau sem hér eru undir. Þetta er mannréttindamál. Ég held að það verði áhugavert fyrir almenning í landinu að sjá hvernig línur liggja í þessu máli.