151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[15:08]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég ætla að taka undir með hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni þar sem hann talaði um mikilvægi þess að virða réttindi fatlaðs fólks. En við eigum auðvitað að virða réttindi allra kjósenda í landinu. Meðal þeirra réttinda er auðvitað að atkvæði þeirra vegi jafnt. Hér er einungis verið að gera tillögu um að jafna a.m.k. stöðu einstakra þingflokka í kosningum. Ég trúi ekki að hv. þingmaður, sem er hokinn af reynslu og búinn að vera hér manna lengst, sé ekki sammála mér um það. Við hljótum með þessari einföldu breytingu að koma í veg fyrir að flokkar fái aukamann á kostnað þeirra sem eru með tveimur eða þremur prósentustigum meira fylgi. Annað er hræsni þegar fólk talar um virðingu fyrir kjósendum.