151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[15:09]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Jafnt vægi atkvæða er ekki eingöngu mikilvægt til að styrkja dýrmætt lýðræði og tryggja jafnan rétt borgaranna, óháð efnahag, kyni, uppruna eða búsetu. Það er einnig liður í því að auka samkennd, auka skilning og réttlæti í samfélaginu. Við byggjum ekki upp réttlátt og sanngjarnt samfélag með því að viðhalda misskiptingu í kosningakerfinu eins og við gerum núna. Mér sýnist meiri hlutinn, ríkisstjórnarflokkarnir, og Miðflokkurinn ætla að viðhalda því. Þetta er rangt. Einn einstaklingur, eitt atkvæði — það er ekki bara sjálfsögð krafa í nútímasamfélagi heldur líka stór og rík mannréttindakrafa. Þess vegna mun ég eðlilega greiða þessu atkvæði mitt og halda áfram að berjast fyrir þessu sjálfsagða réttlætismáli.