151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[15:10]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Forseti. Jafnt vægi atkvæða hefur ekki náðst í þingkosningum hér á landi. Markmiðið með þessari tillögu er einfaldlega að leiðrétta það, að ná því markmiði að breyta vondri sögu, sögu sem hefur ekki þjónað markmiðum kjósenda í landinu, sögu sem hefur ekki þjónað markmiðum neinna nema þeirra sem vilja viðhalda röngu valdahlutfalli. Þetta þjónar ekki markmiðum íslenskrar þjóðar. Þetta er grundvallarmál og það er grundvallarpólitík að laga þetta vegna þess að þetta er réttlætismál. Þetta er sanngirnismál fyrir íslenska þjóð, fyrir þegna landsins. Ég hvet þingheim til að virða hið raunverulega réttlæti og greiða þessari breytingartillögu atkvæði sitt.