kosningalög.
Forseti. Eins og fram hefur komið í umræðunni í þingsal settu Miðflokksmenn sig upp á móti málinu þegar kemur að aðgengi annars vegar og póstkosningum hins vegar. Þetta eru atriði sem skipta raunverulega máli varðandi grunngildi: Hvað ætlum við að setja ofar? Aðgengi að því að fá að kjósa? Þegar kemur að fötluðu fólki ætlum við að setja aðgengi að því að fá að kjósa ofar en mögulega áhættu varðandi leyndina eða þvingað atkvæði. Það er nú þegar í lögum að sýslumenn geta mætt á vistheimili o.s.frv. til þess að tryggja aðgengið frekar þó að það geti falið það í sér að leyndin verði ekki til staðar. Við gerðum það líka í Covid síðasta sumar, þá kaus fólk í gegnum glugga. Það var ekki leynileg kosning gagnvart þeim sem tóku við atkvæðinu, en við ákváðum að það skipti meira máli að fólk gæti kosið. Í frumvarpinu var bent á varðandi póstkosninguna að slíkt væri gert í útlöndum, en fólk þarf að skrá sig inn, fá atkvæðið sitt og er þar af leiðandi búið að skrá sig inn og staðfesta persónuupplýsingar sínar. Svo sendir fólk atkvæðið sitt eins og um utankjörfundaratkvæðagreiðslu væri að ræða. Það er því búið að uppfylla þessi skilyrði. Svo bættum við meira að segja við, eins og með (Forseti hringir.) rafrænu kosningarnar, að þegar fólk kýs getur það kosið aftur til að það sé ekki um þvingun að ræða, það þarf að sitja mjög lengi yfir manneskjunni, þannig að það þarf ofboðslega viðamikið batterí til að reyna að svindla með þessum hætti. (Forseti hringir.) Þá myndi nýjasta atkvæðið gilda, og það er í frumvarpinu. Samt vildu þau taka þetta út og við það situr. (Forseti hringir.) Annars hefði ekkert gerst í þessum málum og öll þessi vinna verið fyrir bí. Okkur tekst þetta svona, en því miður bara svona.