151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

nýting á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.

538. mál
[15:32]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er um gott mál að ræða. Það var ánægjulegt fyrir hv. fjárlaganefnd að hoppa aðeins út úr þessum hefðbundna fjárlagaramma og kljást við þetta mál, það á sér marga anga. Hér er fyrst og fremst verið að formgera verklag um ráðstöfun og meðferð landeigna ríkisins til nýtingar í atvinnuskyni með áherslu á, eins og skýrar kröfur eru um, gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Hér er verið að tryggja vönduð og fagleg vinnubrögð. Þetta er gott mál sem stuðlar að hagkvæmari nýtingu og vernd um leið og þar með að sjálfbærari nýtingu til lengri tíma og aukinni verðmætasköpun.