151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

barnaverndarlög.

731. mál
[15:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er vissulega gott mál sem við greiðum atkvæði um núna. Við í Viðreisn styðjum það. Það kemur aftast í röð nokkurra mála sem varða þjónustu við börn og unglinga, samþættingu, alls konar kerfisbreytingar. Það er ekki nema gott eitt um það að segja. Ég segi fyrir mína parta og okkar í Viðreisn að það hefði verið gott ef stjórnvöld hefðu á sama tíma ráðið við að fara út í stórkostlegar betrumbætur á því umhverfi sem skapar biðlistana sem börn og foreldrar barna þurfa að bíða á eftir þessari þjónustu. Ég treysti því og trúi að það verði meðal forgangsverkefna næstu ríkisstjórnar. En við styðjum þetta mál, það er þó skref í rétta átt.