151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

barnaverndarlög.

731. mál
[15:45]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það frumvarp sem hér er greitt atkvæði um er í samhengi við hin barnamálin, sem svo hafa verið kölluð, sem við höfum verið að fjalla um undanfarna mánuði hér í þinginu. Hér eru breytingar á barnaverndarlögum sem er mikilvægt að gera í samræmi við breytingar sem þegar hafa verið gerðar á öðrum lögum. Það er hins vegar mikilvægt að það komi fram að ekki er um heildarendurskoðun á barnaverndarlögunum að ræða, hluti hennar á eftir að fara fram og sú vinna mun þegar vera í gangi í ráðuneyti félags- og barnamála og mikilvægt að hún komi sem fyrst til framkvæmda. En það er mikið fagnaðarefni að við skulum ganga til þessara breytinga og setja þannig punkt aftan við það mikla verk sem hefur verið unnið í þessum málum á kjörtímabilinu.