151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

barnaverndarlög.

731. mál
[15:46]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir að hér er um gott mál að ræða og öll þau mál sem því fylgja og við höfum afgreitt áður. Ég var þó með fyrirvara við afgreiðslu þessa máls frá velferðarnefnd og hef verið allan tímann, um það að gera barnaverndarnefndirnar of kerfislægar og fara of langt frá pólitíkinni, eins og var sagt áðan er verið að leggja niður pólitísku barnaverndarnefndirnar og gera þetta að stórum umdæmum. Ég tel vera áhættu að gera það og ég hef því þann fyrirvara á þessu máli en styð að öðru leyti.