Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Við ræðum hér nefndarálit við 2. umr. um frumvarp ríkisstjórnar Íslands um stofnun hálendisþjóðgarðs, mál sem ríkisstjórnin var einhuga um að skyldi farið í, hluti af stjórnarsáttmálanum. Sérstök nefnd var skipuð til að undirbúa framkvæmdina þar sem allir nefndarmenn nema einn blessuðu útkomuna, skrifuðu undir, ákváðu að leggja fram plagg til að halda áfram með. Sá eini sem ekki kvittaði undir þetta var fulltrúi Miðflokksins í þessari undirbúningsnefnd eða ráðgjafarnefnd eða hvað þetta kallast, Bergþór Ólason. Fulltrúar hinna stjórnmálaflokkanna, þar á meðal fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, ákváðu þarna að leggja til ákveðnar leiðir, benda á möguleika til að halda áfram með málið.
Ríkisstjórnin samþykkir síðan að fara áfram með málið, ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, og vísa því til þingflokkanna. Ekki heyrðust neinir fyrirvarar á þessum tímum, ekki frekar en við gerð stjórnarsáttmálans, engir fyrirvarar. Löngu síðar komu fulltrúar þessara flokka, þar á meðal formaður Framsóknarflokksins, með einhverja eftiráskýringu um einhverja fyrirvara. Það var ekki fyrr en þeir voru orðnir mjög hræddir að þurfa að svara fyrir þennan þjóðgarð í komandi kosningum að farið var að tala um eitthvað annað. Það er fyrir baráttu fólksins þarna úti, baráttu hagsmunaaðila, baráttu þeirra sem vilja fara frjálst um landið og okkar Miðflokksmanna hér á þingi, sem þessi hræðsla fór af stað, þar sem menn fóru að átta sig á því að þetta gæti skaðað þá í næstu kosningum. En það var samt ljós einhvers staðar þarna hjá stjórnarmeirihlutanum, þau fóru að velta fyrir sér hvernig þau gætu samt klárað málið án þess að setja samstarfið núna í uppnám og án þess að koma í veg fyrir að þessir flokkar gætu haldið áfram eftir 25. september ef þeir myndu fá til þess nógu mikinn styrk. Þá var farið í að semja hér eitthvert nefndarálit með frávísunartillögu til að þurfa ekki að svara fyrir málið í þingsal með því að segja já eða nei við stofnun miðhálendisþjóðgarðs sem þeir höfðu þó unnið að allan tímann þar til nú, leynt og ljóst, herra forseti.
Það kom því ekkert á óvart í rauninni að meiri hlutinn, Vinstri græn, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, skyldi hafa komið sér niður á orðalag sem rammar inn og undirstrikar og geirneglir að fái þessir flokkar til þess styrk eftir næstu kosningar verður haldið áfram með þá vinnu sem þegar er búið að vinna. Hún verður vonandi skoðuð eitthvað betur eins og nefnt er hér. Þá verður vonandi farið betur yfir málin. Þó það nú væri, eftir 150 umsagnir eða hvað þær eru, langflestar neikvæðar. Þó það nú væri að menn myndu setjast niður og velta fyrir sér hvað sé að. Hvers vegna eru þessi miklu mótmæli? Hvers vegna er þessi örlitli grenjandi minni hluti að kvarta sem er náttúrlega meiri hluti? Það er bara eðlilegt. En það dylst engum, herra forseti, að þessir flokkar ætla að halda áfram á sömu vegferð, með sömu markmið í rauninni, að taka einn þriðja af landinu og fela það miðstýrðu yfirvaldi þar sem einn ráðherra hefur ægivald yfir því sem þar er gert, herra forseti.
Það hugnast okkur ekki, það er algerlega ljóst. Það er reyndar svolítið sérstakt, finnst mér, herra forseti, að taka ekki bara af skarið og sýna smákjark og taka málið á dagskrá og afgreiða það með samþykkt eða synjun. Ég velti því fyrir mér hvort þessir ágætu stjórnmálaflokkar haldi að fólk sjái ekki í gegnum þennan texta sem þarna er. Með leyfi forseta ætla ég að leyfa mér að lesa hér upp niðurlag nefndarálits meiri hlutans þar sem stendur m.a., og vil nefna að hér á undan er mikill og fallegur texti um sátt sem ég fer betur yfir á eftir:
„Meiri hlutinn telur að til að ná slíkri sátt þurfi að gefa málinu lengri tíma og mikilvægt sé að halda áfram að vinna að því í víðtæku samráði við alla hagaðila.
Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið sem verði byggt á þeirri vinnu sem hér hefur verið rakin.“
Og nú skulum við athuga það, herra forseti, að sá umhverfis- og auðlindaráðherra sem nú situr mun sitja a.m.k. til 25. september, örugglega eitthvað lengur því að það mun sjálfsagt taka einhvern tíma að mynda ríkisstjórn nema það sé búið að ganga frá þessu öllu hér í dag en margt bendir til að svo sé miðað við þennan texta sem ég var að lesa hér upp. Þannig að nú ætla ríkisstjórnarflokkarnir að fela sínum ráðherra að halda áfram að undirbúa málið og leggja fram frumvarp. Þeir treysta sér ekki til að klára það núna af því að það eru að koma kosningar þannig að þeir segja að það sé bara best að sami ráðherra vinni þetta aðeins lengur, tefji þetta pínu, skoði einhverja vankanta sem einhverjir hafa kvartað yfir en komi svo með nýtt frumvarp. Það er það sem stendur upp úr í dag, herra forseti, að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur ætla sér að klára þetta mál með Vinstri grænum fái þeir til þess styrk.
Ég reyndar spurði í morgun, herra forseti, einn af þingmönnum stjórnarflokkanna sem var hér að flytja ræðu, hvort þetta væri svona, að menn ætluðu að halda áfram og svarið var já. Svarið var já, það á að halda áfram með þetta. Ég vil bara þakka fyrir að það sé alveg skýrt kveðið upp úr um það. Ég held, herra forseti, ég man það ekki, að það sé einn annar stjórnarliði á mælendaskrá í dag en það vekur aðeins furðu að það séu ekki einhverjir fleiri sem ætli sér að útskýra þetta mál fyrir okkur. En vonandi mun sá ágæti þingmaður koma hingað upp og segja okkur hvað í rauninni felst í því að ætla að halda áfram með málið og að ráðherra sem hann styður eigi að leggja málið fram.
Það eru tvö nefndarálit minni hluta í þessu máli og annað er frá 1. minni hluta sem er undirritað af hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni og þar segir, með leyfi forseta, í fyrstu línu þess ágæta nefndarálits:
„Fyrsti minni hluti telur það vera fyrirslátt að bera fyrir sig tímaskort vegna heimsfaraldurs kórónuveiru þegar kemur að jafn mikilvægu máli og hálendisþjóðgarður er.“
Auðvitað er þetta rétt hjá hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni. Auðvitað er það bara fyrirsláttur að reyna að telja okkur trú um að Covid-faraldurinn hafi haft einhver áhrif á þessa vinnu. Nefndin afgreiddi hátt í 20 mál ef ég man rétt. Það er mjög furðulegt að reyna að skýla sér á bak við þetta. Mig minnir að ég hafi lesið, ég sé það ekki hérna, að það hafi verið haldnir einhverjir 12, 13, 14 fundir um þetta mál og margir gestir komið en samt treystu menn sér ekki til að klára málið og það er ekki út af Covid. Það er bara út af því að menn fengu hland fyrir hjartað og þorðu ekki að fara alla leið.
Með fullri og góðri virðingu fyrir hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni þá vil ég klára að segja það sem honum finnst um málið, að Samfylkingin tekur af allan vafa um að hún muni áfram berjast og hafi barist fyrir miðhálendisþjóðgarði alla tíð og vonbrigði hennar eru mikil að þetta mál skuli ekki ná fram að ganga. Við erum alla vega komin með fjóra flokka sem vilja berjast fyrir miðhálendisþjóðgarði og ég held reyndar að þeir séu fleiri. Það eru þá Vinstri græn, Samfylking, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur. Það er þá hægt að bæta aðeins við ríkisstjórnina eftir kosningar til að ná þessu fram ef menn telja það eitthvað hæpið, þurfa kannski að heimila sínum þingmönnum að sprella eitthvað, vera kannski ekki á flokkslínu þegar kemur að því að afgreiða mál, og þá er gott að hafa aukinn styrk.
Í nefndaráliti 2. minni hluta, sem er undirritað af Bergþóri Ólasyni og Karli Gauta Hjaltasyni, er farið mjög vel í gegnum allt málið. Það er farið vel í gegnum aðdragandann, það er farið í gegnum samráð og samstöðuleysi sem kallað er hér og ég sagðist áðan ætla að koma að því og kem aðeins að því. Síðan er frumvarpinu lýst og farið í gegnum stjórnsýslu og ýmislegt í frumvarpinu o.s.frv. Það er nú margt sem stendur upp úr, herra forseti, en eitt af því er sú mikla andstaða sem kom fram við málið og var við málið allan tímann sem það var í nefndinni, og það er vitanlega enn í rauninni mikil andstaða við það, frá sveitarfélögum, frá einstaklingum, frá hagsmunasamtökum, frá áhugamönnum, frá hinum venjulega Íslendingi sem telur sig ekki vera í hinum litla grenjandi minni hluta. Fólkið sem vill geta ferðast um landið, vill jafnvel geta haft starfsemi á landinu en ber virðingu fyrir því.
Þetta frumvarp er að mínu viti risastór mistök, enda hefur verið á það bent að samráð, og leit eftir samstöðu, hafi verið sáralítið eða ekki neitt. Auðvitað eru það ákveðin vonbrigði að fara fram með svo stórt mál með þeim hætti. Maður veltir því líka fyrir sér: Hvað voru menn að gera allan þennan tíma? Látum vera, við skulum vera sanngjörn, það var erfitt að ferðast um landið þegar Covid var. Það var svo sem hægt að halda netfundi, það hefði verið hægt, en hæstv. ráðherra fór í ferðalag að reyna að selja landsmönnum þetta mál með litlum árangri, með mjög litlum árangri. Þess vegna er óskiljanlegt í rauninni í hvað allur tíminn fór. Í hvað fór allur þessi tími? Höfðu menn kannski allan tímann ekki algerlega sannfæringu fyrir því? Ef menn höfðu ekki sannfæringu fyrir því, hvers vegna var ekki gripið í taumana fyrr?
Hvers vegna sátu fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ekki hjá eða sögðu sig frá vinnunni í undirbúningsnefndinni? Hvers vegna hafði ríkisstjórnin ekki fyrirvara um málið? Hvers vegna var málinu ekki breytt í meðferð ríkisstjórnar eða þingflokka? Það er vegna þess að menn voru sáttir við málið, það er vegna þess að stjórnarmeirihlutinn var sáttur við málið. Það vorum við ekki og verðum ekki. Það er því, herra forseti, í raun stórundarlegt í sjálfu sér að menn skuli ekki leggja meiri metnað í það að reyna að telja okkur trú um að það sé eitthvað annað, því að auðvitað vitum við að nú eru þingmenn stjórnarflokkanna að tala út og suður hér utan þessa húss, algjörlega út og suður, segja að málið hafi stoppað, segja að þetta muni ekki ná fram að ganga og aðrir segja að þetta sé í fínu lagi, berja sér á brjóst og segja: Við höfðum yfirlýsinguna í gegn, við viljum vinna áfram að þessu. Hvers vegna gengu menn ekki hreint til verks og komu með málið inn í þingið og leyfðu okkur að greiða atkvæði um það og sýna að Miðflokkurinn væri líklega eini flokkurinn sem hefði verið á móti málinu? Það hefði verið meiri bragur á því, herra forseti.
Annar minni hluti rekur allt þetta ferli ágætlega í nefndaráliti sínu, fer vel yfir þá staðreynd að þessir flokkar í ríkisstjórn ætla að halda áfram með málið, fer yfir samráðsleysið, samstöðuleysið og, herra forseti, við erum að tala um einn þriðja af landinu og menn leggja ekki meira á sig en þetta. Það er hér kafli sem heitir Vanbúið frumvarp og ákveðnir árekstrar í frumvarpinu, sem er ágætlega greint frá hér af hálfu 2. minni hluta, en á það hefur reyndar líka verið bent í umsögnum um málið að þar er ákveðin mótsögn, eins og hér er sagt, svo dæmi sé tekið, með leyfi forseta:
„Þannig virðist t.d. vera óljóst hvort markmið frumvarpsins sé að ferðamönnum á svæðinu fjölgi eða fækki.“
Við megum heldur ekki gleyma því eins og hér er minnst á að það eru miklir hagsmunir undir, miklir hagsmunir okkar allra í rauninni, að það verði ekki tekinn af okkur rétturinn til að fara um landið eins og við höfum gert mjög lengi. Það er staðreynd að náttúran þróast með þeim sem lifa í náttúrunni, hvort sem það er maðurinn eða dýrin. Það er bara eðlilegt.
Hér er líka fjallað aðeins um nýtingu orkuauðlinda. Það voru vitanlega gríðarleg vonbrigði þegar það kom í ljós að flokkar sem höfðu talið sig vera atvinnuuppbyggingarflokka höfðu í rauninni gefið grænt ljós á að henda út af borðinu gríðarlegum möguleikum á að nýta orku landsins til atvinnusköpunar, til að bæta lífsgæði núverandi kynslóða og komandi kynslóða. Það átti bara að láta það undir miðstýringu og fækka kostum eins og ekkert væri.
Ég vil, herra forseti, líka leyfa mér að hrósa sveitarstjórnarmönnum og fulltrúum þeirra samtaka sem hafa verið gríðarlega ötul að vekja athygli á þessari gríðarlega miklu miðstýringu sem þarna átti að fara fram og í raun taka stjórnina, og ég ætla að leyfa mér að nota hið fallega orð heimamenn frá heimamönnum og fara með það hingað.
Eins og ég var að segja höfðu sveitarstjórnarmenn og aðrir varað við þessu, ekki síst vegna þess að það var markmiðið að taka skipulag stjórnsýslusvæðisins frá þessum lýðræðislega kjörnu fulltrúum sveitarfélaga og færa jafnvel til annarra sveitarfélaga eða einhverra stofnana eða stjórna, félagasamtaka og embættismanna, og þetta er það sem þessir flokkar ætla að vinna áfram að. Þetta er það sem á að halda áfram með. Það á að halda áfram með þá vinnu að taka þennan rétt og þessi völd, þetta lýðræðislega vald, frá þessum aðilum. Það á líka að halda áfram með þá vinnu að friða eða merkja þetta svæði þannig að við töpum orkunýtingarkostum okkar.
Herra forseti. Ég fer nú að láta þessu lokið. Tími minn er á þrotum. Ég ætla, með leyfi forseta, að lesa hér örstutt upp úr lokaorðum álits 2. minni hluta, með leyfi forseta:
„Það kemur verulega á óvart að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nefndinni leggi til að nýtt frumvarp um hálendisþjóðgarð verði lagt fram á næsta kjörtímabili, enda er sá verkefnalisti sem lagður er fyrir ráðherra í frávísunartillögu meiri hlutans að meginhluta til þegar uppfylltur, að mati ráðherrans. Það stefnir því í sama graut í sömu skál, haldi núverandi stjórnarflokkar samstarfi sínu áfram.“
Það er það sem er boðað í þessu máli, herra forseti. Það er áframhaldandi samstarf þessara þriggja flokka, áframhaldandi vinna við hálendisþjóðgarðsfrumvarpið og með það að markmiði að ráðherrann, sem þessir flokkar styðja svo dyggilega, leggi fram nýtt vel undirbúið mál. Ég hræðist þetta mjög, herra forseti.