Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við hvorki meira né minna en hálendi Íslands og svokallaðan hálendisþjóðgarð. Hálendi Íslands er okkur öllum mikilvægt og öllum kært. Það hefur skapað mjög mikla umræðu. Það hefur sýnt sig í því hvað það eru margir fjölbreyttir hópar, margt fólk úti um allt land á misjöfnum stöðum, sem hafa tekið þátt í umræðunni um þetta mál, í umræðunni um hálendið. Fyrir það er ég þakklátur. Ég þakka þessu fólki fyrir að taka virkan þátt í umræðunni um svona stórt mál sem við höfum verið með til meðferðar hér á þinginu. Svona eiga málin að vinnast, í samtali þings og þjóðar. Þannig eiga málin að vinnast.
Ástæðan fyrir því að við erum í dag að ræða frávísunartillögu með nokkuð mörgum atriðum sem þarf að vinna betur, ná meiri sátt um, er vinna þess fólks sem ég nefndi áðan, sem hefur verið í samtali við okkur. Fólkið lagði fram sína skoðun og málefnaleg rök sem skilar sér í því að við erum að vísa málinu aftur til ríkisstjórnarinnar til betri vinnu, til að ná sátt. Um það snýst málið og ég segi bara takk við þá 158 aðila sem sendu inn umsagnir um málið, þá fjölmörgu aðila sem ég og fleiri þingmenn og aðrir höfum verið í samskiptum við allt þetta kjörtímabil. Frá því að þverpólitíska nefndin var sett á fót hef ég lagt mig fram um að fara um landið, fara út til fólksins og hitta það og ræða það mikilvæga og stóra mál sem hálendið er við fólkið, fá að vita um aðstæður þess, áhyggjur þess og skoðun á þessu máli. Á þeim grundvelli hef ég unnið þetta mál og byggt afstöðu mína frá upphafi.
Þverpólitíska nefndin átti mikið samráð og skilaði mjög stórri og efnismikilli skýrslu. Sú skýrsla er gríðarlega mikilvæg við vinnslu þessa máls af því að þar sameinumst við öll nema fulltrúi Miðflokksins um vissar forsendur fyrir þjóðgarði. Svo kemur hér inn þingmál sem uppfyllti ekki forsendurnar. Það er hluti af þeirri andstöðu sem þetta þingmál er að fá hér. Núna erum við að fjalla um frávísunartillögu sem byggist á sömu atriðum og ég a.m.k. lagði áherslu á í þverpólitísku nefndinni, ég gerði mína fyrirvara og minnisblað um þegar skýrslunni var skilað. Nú er þingið að segja það aftur. Þetta plagg hér, eins og plaggið sem allir nema fulltrúi Miðflokksins samþykktu, skiptir miklu máli í meðförum málsins. Þetta eru plögg sem fólkið þarna úti bjó til með okkur. Það kom með sín rök, sínar málefnalegu skoðanir og vann með okkur. Ég segi takk við fólkið fyrir þetta mikla og góða samstarf.
Hálendi Íslands er mikilvægt fyrir svo marga og við viljum standa vörð um ferðafrelsið. Við viljum standa vörð um nytjaréttinn. Við viljum standa vörð um hálendið sem slíkt. Við viljum hafa skilvirkt stjórnkerfi yfir hálendinu þannig að þeir sem vilja nýta það á einn eða annan hátt, eða við sem þjóð sem þurfum að nýta það á annan hátt, geti gengið að leikreglum sem eru skilvirkar og ganga upp, sem eru þjóðinni fyrir bestu. Við viljum að útivistarfólk geti notið þess og, eins og ég kom inn á, að þeir sem eru með nytjarétt og annað geti notið þess áfram. Þetta fólk — sveitarfélögin, félagasamtök, nytjarétthafar, útivistarfólk, almenningur í þessu landi — hefur verið að hugsa mjög vel um hálendið hingað til, það er ástæðan fyrir því að hálendið okkar er svo dýrmætt, hvað við höfum gengið vel um það og hvernig við höfum nýtt það og hvernig við höfum lært að virða það. Þennan frumkvæðismátt og framtaksmátt má bara virkja áfram en ekki skerða. Það má ekki letja þennan frumkvæðismátt. Við verðum að viðhalda honum. Hann sést í þeirri miklu umræðu og þátttöku sem hefur verið í þessu máli.
Þegar svona margir mismunandi hópar eru sammála um mikilvægi eins landsvæðis er mikilvægt að ná sátt um það. Þetta er mál sem er mikilvægt að ná sátt um. Því fagna ég þeirri miklu vinnu og umræðu sem hefur orðið um málið þar sem öll sjónarmið hafa fengið að koma að borðinu. Við getum reynt að ræða okkur niður á lausn í þessu mikilvæga máli. Ég er ekki fyrir fram á móti því að finna lausn í þessu máli, ég fagna því ef við finnum hana og trúi að við getum það.
Þjóðgarður er ekki það sama og þjóðgarður. Það eru til margar útfærslur af þjóðgarði. Það er stærðin, stjórnfyrirkomulagið, rekstrarfyrirkomulagið, friðlýsingarskilmálar og margt sem er hægt að gera á mismunandi vegu. Þó að menn séu á móti þessu frumvarpi, á móti því uppleggi sem kom í frumvarpinu er ekki þar með sagt að maður sé á móti öllum útfærslum sem mögulegar eru. Hálendið er í þremur mismunandi útfærslum í dag. Það eru þjóðlendurnar og visst þjóðlendufyrirkomulag sem ég held að sé komið í ágætisfarveg og hefur virkað ágætlega. Við erum með friðlýstu svæðin sem hafa öðruvísi stjórnfyrirkomulag og svo erum við með Vatnajökulsþjóðgarð sem ég tel vera mesta báknið og erfiðasta. En ég vil taka fram að það gengur vel að reka Vatnajökulsþjóðgarð í dag og innra starfið er orðið miklu betra og komið í flottan farveg, en það er stjórnfyrirkomulagið sem ég gagnrýni þar og hef gert lengi. Við þurfum að læra af því hvernig það er og hafa það til hliðsjónar.
Við ræðum hér frávísunartillögu eftir þær miklu umsagnir og upplýsingar sem við höfum fengið frá fólkinu þarna úti og það á þökk skilið fyrir það. Það er ómögulegt að segja hvað tekur langan tíma að ná sátt en hér er alla vega Alþingi Íslendinga að segja í þessari frávísunartillögu að það verði að vera víðtækt samráð og sátt. Hér eru mörg atriði sem ég ætla ekki að telja upp sem þarf að fara yfir og ná fram. Þar er vísað til þess að meira sé farið eftir vilja sveitarfélaganna í þessu. Skoða þarf umfangið, stjórnfyrirkomulagið og allt það sem ég hef verið að ræða. Það er aðalatriðið hér og ég segi að lokum: Þjóðin talaði, við hlustuðum.