Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir ágætisræðu. Ég veitti því athygli að lýsingar þingmannsins voru á þann veg að staða mála væri bara býsna góð eins og hún er á hálendi Íslands. Auðvitað eru alltaf ákveðnir hlutir sem þarf að laga og það eru leiðir til þess innan núverandi regluverks. Hv. þingmaður fór yfir þessar þrjár gerðir landsvæða; þjóðlendurnar, friðlýstu svæðin og síðan Vatnajökulsþjóðgarð, sem hann lýsti sem mesta bákninu af þessum þremur. Í ljósi þess hversu ágætlega að mörgu leyti starfsemin gengur inni á hálendissvæðunum, hvað er það sem kallar á að þessari vinnu sé haldið áfram? Ég veitti því athygli að hv. þingmaður sagði að hann væri ekki fyrir fram á móti stofnun þjóðgarðs ef við fyndum lausn á þeim álitaefnum sem uppi eru. Er ekki svolítið verið að teyma menn á asnaeyrunum með þessari nálgun, að það sé endalaust hægt að segja: Við höfum ekki fundið lausn á þessu, við höfum ekki fundið lausn á hinu? Væri ekki miklu hreinlegra að segja: Heyrðu, við ætlum bara að laga það þar sem vankantar eru á hvað núverandi fyrirkomulag varðar? Við erum greinilega tilbúin að setja þessa fjármuni í þetta eins og liggur fyrir í þessu máli. Það hlýtur að vera vilji ríkisstjórnarinnar og ég veit að margir í stjórnarandstöðunni eru þeirrar skoðunar líka. Til hvers er staðið í þessari vinnu? Lítur hv. þingmaður þannig á að þetta sé ekki skuldbindandi fyrir stjórnarflokkana, haldi þeir áfram samstarfi sínu og finnist lausnir á þeim atriðum sem hér eru talin upp sem þingflokkur Vinstri grænna með umhverfisráðherra í forystu virðist augljóslega telja að þegar sé búið að finna lausn á?