Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég þakka svarið. Mig langaði að fara í niðurlag nefndarálits með frávísunartillögu sem hv. þingmaður skrifar undir. Eftir að fyrirvararnir, hinir endurteknu, hafa verið þuldir upp segir, með leyfi forseta:
„Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið sem verði byggt á þeirri vinnu sem hér hefur verið rakin.“
Og nú ítreka ég: Ég tel mig vita að hæstv. umhverfisráðherra telji þessa vinnu nú þegar alla uppfyllta. Það kemur fram í því sem hæstv. ráðherra hefur sagt. Hvað þýðir þessi setning annað en það að vilji þeirra sem undirrita þetta plagg standi til þess að lagt verði fram nýtt frumvarp um stofnun hálendisþjóðgarðs á næsta kjörtímabili, hafi menn vald og afl til? (Forseti hringir.)
Þannig að ég vil spyrja hv. þingmann: (Forseti hringir.) Er einhvers annars að vænta en að það komi fram frumvarp (Forseti hringir.) um stofnun hálendisþjóðgarðs, eigi Sjálfstæðisflokkurinn aðild að ríkisstjórn á næsta kjörtímabili?
(Forseti (ÞorS): Forseti ánýjar að menn hafa eina mínútu til ráðstöfunar.)