Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Í fyrri ræðu fór ég yfir, eins og aðrir hafa bent á hér, að með þessu máli eru ríkisstjórnarflokkarnir búnir að leggja línurnar um að haldið verði áfram á sömu braut, hálendisþjóðgarðurinn verði kláraður á sömu forsendum nái þessir flokkar meiri hluta á þingi og geti þeir haldið áfram. Síðan hefur það skýrst í umræðunni, með ræðum frá hv. þingmönnum Samfylkingar og Pírata, að ef mynduð verður vinstri stjórn með þeim flokkum verði gengið enn lengra. Þeim þykir ekki nóg að gert hér í stjórnlyndinu, í miðstýringu hálendisins og lokun þess, það verður gengið enn lengra. Það liggur ljóst fyrir að eina vonin um að ná skynsemi í þessu máli er að Miðflokkurinn hafi tækifæri til þess áfram að gera það sem honum hefur nú tekist, að koma í veg fyrir þetta slys.
Málið og umræða um það hefur byggst mjög á þeirri nýaldarpólitík sem einkennir þessa ríkisstjórn þar sem allt snýst um umbúðir og yfirlýst markmið en litið er fram hjá innihaldinu og raunverulegum áhrifum. Það sama á við í svo ótal öðrum málum, eins og loftslagsmálum sem atkvæði voru greidd um fyrr í dag. Það snýst allt um umbúðirnar og yfirlýst markmið en ekki um raunveruleikann. Þetta eru auðvitað nátengd mál því að með því að koma í veg fyrir umhverfisvæna endurnýjanlega orkuvinnslu á Íslandi, eins og þetta mál myndi gera, erum við í raun að bregðast í því að takast á við loftslagsvána.
Það er líka verulegt áhyggjuefni við þetta mál, finnst mér, eins og ég nefndi aðeins í fyrri ræðu, að það er á vissan hátt mannfjandsamlegt. Það er liður í þróun sem hefur verið að ágerast á liðnum árum þar sem ákveðinn hópur fólks lítur svo á að maðurinn eigi varla heima í náttúrunni, hann sé aðskotahlutur þar. Þá má rifja upp að þegar fyrsti þjóðgarðurinn var stofnaður á Íslandi, Þingvallaþjóðgarður, ekki hvað síst undir forystu Jónasar Jónssonar frá Hriflu, þá var það ekki hvað síst vegna sögu mannanna á staðnum og tengsla náttúrunnar og mannanna og sögunnar sem þar hafði orðið til. En hér er lagt upp með allt annan hlut; miðstýrt bákn sem á að taka stóran hluta landsins undan lýðræðislegri stjórn og frá okkur mönnunum, okkur Íslendingum, að eins miklu leyti og menn komast upp með. Og hversu mikið munu menn komast upp með? Ja, það kemur fram í frumvarpinu að ráðherrann fái nánast ótakmarkaðar heimildir til að ganga á lagið, ef þetta frumvarp hefði verið samþykkt. Að vísu er ýmsum félagasamtökum gefið ákveðið vald en ekki öllum, fyrst og fremst er þeim félagasamtökum, ókosnu fólki, ekki lýðræðislega kjörnu á meðal almennings, gefið ákveðið vald ef það eru réttu hóparnir. En aðrir hópar sem hafa notið hálendisins um áratugi fá ekki sömu aðkomu. Hins vegar getur ráðherrann fellt skipun stjórnar úr gildi og auk þess er með reglugerð hægt að gera breytingar á stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Með reglugerð getur ráðherra einnig breytt réttaráhrifum stjórnunar og verndaráætlun og hann getur útvíkkað þjóðgarðinn, friðlýst viðbótarsvæði. Þá er vert að hafa í huga að gert er ráð fyrir að stjórnunar- og verndaráætlunin nái einnig til jaðarsvæða, þótt við vitum ekki alveg hversu mikið rými þessi jaðarsvæði eiga að taka. Þannig að möguleikarnir, ef þetta hefði verið samþykkt, á því að leggja land undir þetta nýja miðstýrða vald eru nánast ótakmarkaðir. Til dæmis var gert ráð fyrir heimildum til að banna akstur vélknúinna ökutækja og að þeir sem ætluðu að stunda starfsemi í þessum þjóðgarði, til að mynda ferðaþjónustan, ættu að gera það á grundvelli samninga, sérstakra samninga þar sem menn greiða gjöld. Það er verið að beina þessu í þann farveg að hugsanlega megi einhverjir koma þarna. Hugsanlega ríkir útlendingar sem geta borgað best en almenningur á Íslandi þarf að mæta hindrunum, er annaðhvort ekki heimilt að fara inn á hálendið á vélknúnum ökutækjum eða þarf að borga fyrir að fá að njóta eigin náttúru í einhvers konar kvótakerfi, að því er virðist, sem lögð voru drög að hér. Það sem er merkilegt við þetta mál er að hvorki almannaréttur né eignarréttur fá vörn í þessu máli, þvert á móti er sótt að þessum grundvallargildum réttarríkisins.
Svo kemur ríkisstjórnin hér með það sem sumir kalla frávísunartillögu, væntanlega til að reyna að eyða umræðu um málið, við höfum séð að það hefur verið lítil þátttaka frá stjórnarliðum í þessari umræðu. En það væri réttara að kalla þetta nýtt upphaf málsins eða kannski fyrsta kaflann í endurnýjuðum stjórnarsáttmála þeirra flokka sem skipa núverandi ríkisstjórn, því að það er alveg afdráttarlaust að halda á áfram með málið á sömu forsendum og ríkisstjórnin hefur unnið það. Að vísu er bætt við frösum um að leitað verði samráðs og hlustað og tekið tillit til allra hópa. En við erum búin að heyra þetta allt áður. Það er búið að sýna þetta leikrit einu sinni og það floppaði. Nú treysta menn á að það sé gleymt að við séum búin að fara í gegnum allt þetta ferli, alla þessa frasa, alla þessa innihaldslausu frasa, áður, að menn gleymi því og gleypi við umbúðunum og talinu um að nú verði hlustað, nú verði tekið tillit til allra sjónarmiða. Vandinn er bara sá að það komu fram mjög ólík sjónarmið um þetta mál og ríkisstjórnin tók ákvörðun. Hún ákvað að virða ákveðin sjónarmið en ekki önnur og gerði það með mjög afdráttarlausum hætti í þessu máli, því að það er ekki hægt að fallast á öll sjónarmið í svona umdeildu máli. Ríkisstjórnin má þó eiga það að hún var skýr með það hvaða sjónarmið hún ætlaði að fallast á, þ.e. sjónarmið lokunar, sjónarmið ólýðræðislegs miðstýrðs valds yfir stórum hluta landsins. Ekki sjónarmið eins og birtast í þeim tugum umsagna sem bárust um þetta mál og voru mjög gagnrýnar á það af hinum ýmsu ástæðum.
Staðan er ljós. Það tókst að koma í veg fyrir að frumvarpið yrði klárað á þann hátt sem ríkisstjórnin lagði upp með, á þann hátt sem þingflokkar stjórnarliðsins samþykktu, á þann hátt sem staðfest var í stjórnarsáttmála, að málið skyldi unnið með nefnd sem skilaði niðurstöðu sinni, ráðherrann kæmi með sitt frumvarp, allt samþykkt í ríkisstjórn og í stjórnarflokkunum. Það tókst að koma í veg fyrir að málið næði í gegn að sinni. En hér hefur verið efnt til sérstakrar umræðu til að gera öllum ljóst, af hálfu sitjandi stjórnarflokka, að fái þeir tækifæri til að halda áfram saman þá munu þeir taka upp þráðinn þar sem frá var horfið, enda þurfi þá ekki að óttast kosningar fyrr en fjórum árum seinna. Þá verði væntanlega miklu auðveldara að setja upp leikritið aftur, samtalsleikritið sem floppaði síðast, og taka sömu afstöðu og síðast með lokunum, með ólýðræðislegri miðstýringu á hálendinu og vona að kjósendur verði búnir að gleyma því eina ferðina enn þegar kemur að næstu kosningum. Það skiptir máli hvernig er stjórnað og það skiptir máli að kjósendur viti fyrir hvað flokkar standa og geti treyst því að þeir muni gera það sem þeir segjast ætla að gera. Það mun Miðflokkurinn gera.