151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

verðbréfasjóðir.

699. mál
[19:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Brynjar Níelsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um verðbréfasjóði. Nefndinni bárust ýmsar umsagnir og margir komu á fund hennar en með frumvarpinu er lagt til að ný heildarlög um verðbréfasjóði öðlist gildi, sem leysi gildandi lög um verðbréfasjóði, nr. 128/2011, af hólmi. Með lögunum verði innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/91/ESB um breytingu á tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum um verðbréfasjóði (UCITS) að því er varðar störf vörsluaðila, starfskjarastefnu og viðurlög og tilskipun 2010/78/ESB um breytingu á tilskipunum 98/26/EB, 2002/87/EB, 2003/6/EB, 2003/41/EB, 2003/71/EB, 2004/39/EB, 2004/109/EB, 2005/60/EB, 2006/48/EB, 2006/49/EB og 2009/65/EB að því er varðar valdsvið Evrópsku eftirlitsstofnunarinnar (Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar), Evrópsku eftirlitsstofnunarinnar (Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar) og Evrópsku eftirlitsstofnunarinnar (Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar) að því er varðar verðbréfasjóði.

Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 20. maí 2021, er að finna viðbrögð ráðuneytisins við umsögnum sem bárust nefndinni og breytingartillögur sem meiri hlutinn hefur yfirfarið og gert að sínum. Breytingarnar eru einkum tæknilegs eðlis og vísast til umfjöllunar í minnisblaði ráðuneytisins um efni þeirra.

Að auki leggur meiri hlutinn til breytingar sem eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif, m.a. lagfæringar á millivísunum og samræming frumvarpsins við önnur frumvörp og breytingar á lögum á sviði fjármálamarkaðar sem nefndin hefur haft til umfjöllunar samhliða málinu.

Meiri hlutinn leggur til að gildistaka laganna verði 1. september 2021.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Undir þetta rita Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason formaður, Jón Steindór Valdimarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy og Þórarinn Ingi Pétursson.