151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[19:51]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu við frumvarp til fjáraukalaga sem hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson er flutningsmaður að og ég flyt fyrir hans hönd og okkar í Viðreisn. Núna á síðustu metrunum þegar við vorum að ræða fjáraukalögin, bárust þær fréttir að innritun í framhaldsskóla væri þannig háttað að ríflega 30 fatlaðir einstaklingar, börn, kæmust ekki inn í framhaldsskóla. Ég veit vel að það er alltaf púsl á síðustu metrum að koma öllum inn í framhaldsskóla, fötluðum sem ófötluðum, en það sem við megum ekki gera er að gefa út þessi vondu óvissuskilaboð sem valda heimilum, umhverfi og fjölskyldum þessara einstaklinga ekki bara aukinni vanlíðan heldur ýta þau undir óvissu um hvað framtíðin beri í skauti sér, hvað taki við. Við verðum að fara að taka almennilega til hendinni þar. Ég bind vonir við að hægt verði að laga þetta.

En af hverju er ýtt svona hressilega við okkur núna? Jú, af því að þetta eru ríflega 30 börn. Þá er svarið hjá ráðuneytinu: Þetta eru bara miklu fleiri en venjulega. Við höfum verið að benda á að við séum búin að vita þetta í 16 ár. Þetta eru ekki einstaklingar sem verða allt í einu fatlaðir, með þroskahömlun og fleira, þetta eru einstaklingar sem leita inn á starfsbrautirnar. Það er einstakt að heimsækja starfsbrautir framhaldsskólanna og sjá hversu fjölbreytt og ótrúlegt starf er innt þar af hendi, starf þar sem reynt er að ýta undir hæfni, getu og þarfir þeirra einstaklinga sem um ræðir. Við þurfum að búa þannig um að þessir einstaklingar fái svör og geti fyllt upp í líf sitt. Lífsgæði þeirra geta orðið meiri ef skólakerfið er í stakk búið til þess og ég segi: Það er í stakk búið til þess en það virðist vera að fjármunir hafi ekki fylgt með til að það geti svarað þessum einstaklingum og fjölskyldum þeirra skýrt og skilmerkilega: Jú, þið komist inn í framhaldsskóla, annaðhvort þar sem þið sóttuð um eða annars staðar. Það er mikilvægt að leiðbeina þeim og ekki síst að veita skýr svör. Sá hópur sem um ræðir er mjög tengdur, krakkarnir senda út skilaboð og þau fylgjast mjög spennt með því í hvaða skóla hvert og eitt þeirra fer. Það er þyngra en tárum taki að sjá þegar einn eða kannski tveir einstaklingar ná ekki að fylgja sínum hópi inn í tiltekna skóla.

Þetta er hægt að laga. Við erum búin að sýna alveg ótrúlega snerpu og elju á þessum veirutíma. Við höfum hlaupið undir bagga með fólki og fyrirtækjum og rýnt og greint vandann strax og á hefur þurft að halda. Nú er vandinn sá að þessi 30 börn komast ekki inn í framhaldsskóla eins og sakir standa. Ég veit að ráðuneytið er að vinna að því og ég vona að þessi umræða hafi alla vega skilað því að hún hafi hrist upp í ráðuneytinu að klára þessi mál sem allra fyrst. Ef fjármuni vantar fyrir skólana, sem þurfa eðlilega að starfa innan ramma fjárlaga, og það er víst þannig, þarf að svara því kalli. Þess vegna leggjum við fram þessa tillögu um aukin rekstrarframlög til framhaldsskólanna þannig að hægt verði að tryggja nýjum nemendum á starfsbrautum og sérnámsbrautum, þessum ríflega 30 nemum, vist í þeim skólum sem best henta aðstæðum þeirra og þörfum. Auðvitað er enginn betur til þess fallinn en einstaklingurinn sjálfur, með foreldrum og aðstandendum, að meta það.

Þessi fjárhæð samsvarar ráðningu starfsmanna eða kennara sem þarf til að svara þessu kalli. Ég hvet þingmenn og þingheim til að hlusta á neyðarkall þessara fötluðu einstaklinga og foreldra þeirra um að klára þetta mál sem allra fyrst. Ekki láta óvissuna, óöryggið og allar þær erfiðu tilfinningar sem því fylgja fara með okkur langt inn í sumarið. Afgreiðum málið og gerum það með reisn. Við náum að klára hér nokkur mál með nokkurri samheldni og samvinnu og við eigum að geta gert það líka með þetta mál. Þess vegna leggjum við til að við sýnum að hv. Alþingi, þessi yndislega stofnun, geti líka brugðist hratt við þegar bræður okkar og systur, sem sérstaklega þurfa á umhyggju og utanumhaldi að halda, kalla. Við eigum að svara því kalli. Þess vegna hvet ég okkur hér til að samþykkja þessa tillögu frá okkur þannig að skólarnir geti strax farið að senda þessum yndislegu einstaklingum svör um að þau séu komin inn í framhaldsskóla.