151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

stjórnsýslulög.

793. mál
[19:57]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Jón Þór Ólafsson) (P):

Forseti. Ég flyt hér frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (þagnarskylda fyrir dómi eða lögreglu) frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. 1. gr. frumvarpsins hljóðar svo:

„2. málsl. 5. mgr. 43. gr. laganna fellur brott.“

2. gr. hljóðar svo:

„Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Kjarni málsins er leiðrétting á lögum sem samþykkt voru á síðasta þingi þar sem verið var að laga þagnarskyldu en var ágalli að víkja mátti frá þagnarskyldu ef upplýsingarnar væru nauðsynlegar í dómsmáli. Tilgangurinn var sá að einungis yrði hægt að víkja frá þessari þagnarskyldu í dómsmálinu sjálfu og hægt að hafa dómshaldið lokað. En eins og textinn hljóðar væri það þannig að ef þessar upplýsingar yrðu notaðar í dómsmáli væri þagnarskyldan alveg farin af þeim upplýsingum sem þar hvíla undir, sem var ekki ætlunin og ekki í samræmi við góðar meginreglur réttarríkisins og persónuvernd. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fékk ábendingu um þetta frá forsætisráðuneytinu og breytingartillaga var tilbúin sem við gætum flutt til að hægt væri að gera þetta hratt og vel og koma þessari lagfæringu í lög fyrir réttaröryggi í landinu.

Ég fer snögglega í greinargerðina:

„Frumvarp þetta er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að beiðni forsætisráðuneytisins og í samráði við Seðlabanka Íslands. Með því eru lagðar til breytingar á 43. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Með samþykkt laga nr. 71/2019 var nýjum kafla bætt við stjórnsýslulög um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Kaflinn byggðist á tillögum dr. jur. Páls Hreinssonar, forseta EFTA-dómstólsins, en nefnd á vegum forsætisráðuneytisins um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis annaðist lokafrágang og samráð um efni frumvarps sem varð að lögum nr. 71/2019. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í tilefni af umsögn Seðlabanka Íslands um málið hafi m.a. verið gerð sú breyting á 43. gr. að þagnarskylda falli niður komi til þess að dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu.

Páll Hreinsson hefur bent á að litið sé svo á að þagnarskylda haldist enda þótt vitni sé skyldað með dómsúrskurði til að bera vitni fyrir dómi eða veita lögreglu upplýsingar. Þegar slíkar upplýsingar eru veittar fyrir dómi sé dómþing almennt lokað og þeir sem fá að sitja þinghaldið séu bundnir þagnarskyldu og varði brot á henni réttarfarssekt. Í úrskurði dómara felist síðan fyrst og fremst niðurstaða um það hvort það sé viðeigandi að nota þagnarskyldar upplýsingar sem orðið hafa til í allt öðrum tilgangi en við meðferð sakamáls. Í úrskurðinum felist hins vegar ekki að þagnarskyldu verði létt af upplýsingunum. Í fræðum og framkvæmd hafi þannig verið litið á að þegar einstaklingur er knúinn til að veita upplýsingar sem þagnarskylda ríkir um, annaðhvort samkvæmt fyrirmælum laga eða dómsúrskurði, haldist þagnarskyldan áfram eigi að síður.

Framangreint fær m.a. stoð í niðurstöðu Hæstaréttar Íslands frá 3. júní 2014 (329/2014) þar sem félag krafðist þess að fá afhenta nánar tiltekna hluta úr skýrslum sem átta starfsmenn Seðlabanka Íslands höfðu gefið fyrir rannsóknarnefnd Alþingis samkvæmt lögum um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, nr. 142/2008. Í dómi Hæstaréttar var fallist á niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að félagið ætti ekki rétt til aðgangs að skýrslunum umfram það sem umræddum starfsmönnum væri skylt að upplýsa um á grundvelli ákvæða um vitnaskyldu við skýrslugjöf fyrir dómi og byggðist niðurstaðan á því að skylda starfsmannanna til að veita upplýsingar samkvæmt lögum nr. 142/2008 gæti ekki breytt þeirri staðreynd að upplýsingarnar væru háðar þagnarskyldu skv. 1. mgr. 35. gr. þágildandi laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að það er meginregla íslensks réttar að niðurstaða dómsúrskurðar um að tilteknar upplýsingar skuli veita fyrir dómi eða til lögreglu hafi ekki áhrif á það hvort upplýsingarnar teljist háðar þagnarskyldu í kjölfarið. Er því lagt til að 2. málsl. 5. gr. 43. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, falli brott þar sem efni hans fer skýrlega í bága við þessa meginreglu.“

Þar sem nefndin flytur málið þarf ekki að vísa því til nefndar á milli 1. og 2. umr. þannig að ég legg til að málið gangi til 2. umr.