fjáraukalög 2021.
Herra forseti. Ég velti því fyrir mér hvort fólk átti sig ekki alveg á því hvaða breytingartillögur við erum að greiða atkvæði um vegna þess að það eru rauð atkvæði hérna upp á vegg. Við erum að tala um 30 einstaklinga, 30 börn sem fæddust fyrir 16 árum, sem kerfið hefur ekki hugsað fyrir. Núna þegar þau geta farið í framhaldsskóla er ekki til peningur til að taka við þeim. (Gripið fram í: Ekki rétt.) Það er ekki til peningur til að hleypa þessum börnum á starfsbrautir. Hér koma þingmenn og segja að þeim sé mikið í mun að bregðast við stöðu þessara barna en eru með puttann á rauða takkanum. (Gripið fram í.)
Kæru vinir. Ef ykkur er mikið í mun að laga þetta þá eruð þið með takka í borðinu til að gera það. (Gripið fram í.) Þið lagið það ekki með því að segja eitthvað heldur með því að gera eitthvað.