151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

Frestun á fundum Alþingis.

863. mál
[21:19]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég ætla ekki að mæla gegn þessu en mér finnst umræða þurfa að eiga sér stað um það hvernig fyrirkomulag við erum að fara inn í varðandi kosningar og setu þingsins. Nú er ríkisstjórnin búin að ákveða að kosningar verði 25. september. Það er ekkert óeðlilegt við það miðað við það hvenær kosningar voru haldnar síðast. Nú er í raun verið að slíta þingi og löggjafarsamkoman kemur ekki saman í fjóra mánuði hið minnsta. Síðan tekur einhvern tíma að koma saman ríkisstjórn. Í raun er framkvæmdarvaldið því meira og minna eftirlitslaust af hálfu löggjafarvaldsins þann tíma.

Ég vildi bara beina því að okkur öllum að hugsa um hvernig umhverfi við erum að fara í, kosningafyrirkomulag og rytma, og hvort rétt sé að stíga þessi skref með þessum hætti, ekki síst með það í huga að við höfum upplifað viku í þinginu þar sem dagskrá þingsins hefur verið slitin úr sambandi. Hvað þýðir það? Það þýðir m.a. að við þingmenn höfum ekki getað komið með óundirbúnar fyrirspurnir til framkvæmdarvaldsins, til ráðherra. Við þingmenn höfum t.d. ekki getað fengið umræðu um mikilsverða skýrslu um leghálsskimanir sem var skilað hér. Við höfum ekki getað tekið lýðræðislega umræðu í þingsal um þessi málefni. Það er verið að loka á lýðræðislega umræðu hér í þingsal fjórum mánuðum fyrir kosningar. Mér finnst þetta vera óþægileg þróun, sér í lagi af því að stjórnmálaflokkarnir hafa ekki talað sig í gegnum það hvernig þeir vilja haga starfsemi og fyrirkomulagi þingsins fram að kosningum. Þetta er það sem ég geld varhuga við en vil um leið segja að í ljósi hefðar og venju mun ég styðja þetta. Ég vildi varpa þessu fram í ljósi þess að við erum að fara heim þegar líða tekur á nóttina.