Frestun á fundum Alþingis.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að taka undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, við eigum eftir að ræða framtíðarfyrirkomulag í kosningum. Nú er verið að festa þá hefð í sessi að kjósa að hausti með öllum þeim afleiðingum sem það hefur fyrir fjárlagagerð, fyrir framkvæmd kosninga í landinu, og svo er það þessi langi tími sem líður frá þingslitum þar til kosningar eiga sér stað, eftirlitslaus tími af hálfu þingsins.
Ég kom hingað upp vegna þess að ég er ósátt við að við ætlum ekki að taka neinn anga stjórnarskrárinnar til umræðu nú í lok sumars eins og til stóð, að það sé útlit fyrir að það verði enginn þingstubbur til að ræða þau mikilvægu mál, þar sem þinginu gæfist lokatækifæri til að efna þjóðarviljann. Því miður virðist ekki ætla að verða úr því. Ég vil samt sem áður hvetja ríkisstjórnina til að íhuga það, í ljósi þess hvert við erum komin með það mál, með stjórnarskrána, hvernig við sigldum henni í strand, hvort við getum ekki a.m.k. komið saman til að samþykkja breytingartillögu um stjórnarskrána þannig að þjóðin hafi eitthvað um það að segja hvernig stjórnarskráin er öðruvísi en í almennum kosningum, bara með þjóðaratkvæðagreiðslu.
Við höfum haft sambærilegt ákvæði áður, við getum gert þetta aftur. Þetta væri það rétta í stöðunni þannig að næsta þing geti a.m.k. tekið sig til og staðið við þjóðaratkvæðagreiðslu. Við höfum tækifæri til að virða þjóðarviljann, a.m.k. að því marki að gefa þjóðinni tækifæri til að ráða því sjálf hvers konar grunnplagg, hvers konar stjórnarskrá, við erum með. Þetta er lykilatriði í því og vil ég hvetja þingheim, og sérstaklega ríkisstjórnina, sem ræður þessu — meiri hlutinn ræður þessu, það hefur verið sagt hér — til að setja breytingarákvæðið á dagskrá. Í því er heiðarleiki og réttlæti falið.