151. löggjafarþing — 114. fundur, 12. júní 2021.
Frestun á fundum Alþingis.
863. mál
Virðulegi forseti. Ég brýt hér hefðina og greiði atkvæði gegn þessu. Mér finnst ótækt að við ljúkum þessu þingi án þess að taka stjórnarskrármálin fyrir. Mér finnst það ótækt, mér finnst það mikil synd. Ég legg til að sú ákvörðun að halda ekki sumarþing seinna verði endurskoðuð. Ég legg til að Alþingi fari að hlusta á almenning og legg það í það minnsta til við meiri hlutann á næsta kjörtímabili að hann drattist til þess. Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.