151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

712. mál
[21:27]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Það er lengi von á einum. Í vinnu hv. umhverfis- og samgöngunefndar — ég ætla nú að byrja á því að nota tækifærið og hrósa nefndinni sérstaklega fyrir góða vinnu og samstöðu í þessu máli — höfum við fengið ábendingu um það að í þessari heildarendurskoðun þyrfti aðeins að snikka til þegar kemur að viðaukum. Við vissum að ábendingar myndu helst koma um það úr geiranum og höfum tekið þeim ábendingum fagnandi. Í starfshópnum sem vann málið, áður en það kom til þingsins, gafst minnstur tími til að setjast yfir viðaukana. Nefndinni barst sú ábending að þegar vísað væri til verndarsvæða í einstökum töluliðum væri hætta á ákveðnum misskilningi. Nefndin áréttar að skv. 1. mgr. 19. gr. frumvarpsins, samanber einnig aðfaraorð 1. viðauka, eru framkvæmdir í flokki B, sem eru undir viðmiðunarmörkum í 1. viðauka, tilkynningarskyldar ef þær eru staðsettar á verndarsvæði, þ.e. óháð stærðarmörkum. Því er almennt ekki þörf á að tilkynna sérstaklega við hvern tölulið í flokki B að framkvæmd sé tilkynningarskyld óháð umfangi ef hún er staðsett á verndarsvæði. Þrátt fyrir það er í nokkrum slíkum tilvikum, í 1. viðauka frumvarpsins, vísað til verndarsvæða.

Í aðfararorðunum er með öðrum orðum sagt að þegar framkvæmdir eru á verndarsvæði séu þær tilkynningarskyldar. Þá mætti ætla að það væri þannig og þyrfti ekkert að ítreka það neitt meira en í einstaka liðum er það gert. Það er vegna sérstakra aðstæðna til að tryggja skýrleika þannig að reglan eigi við í þeim tilfellum. Þá var möguleiki á því að fólk ályktaði sem svo að fyrst það er ekki tilgreint í hinum liðunum þá eigi reglan ekki við, en það er vegna þess að hún er tilgreind í aðfararorðunum. Að beiðni nefndarinnar yfirfór ráðuneytið níu ákvæði 1. viðauka. Þar kemur fram að í tölulið 10.16, sem sérstaklega var bent á, er tilgreint að jarðstrengir séu tilkynningarskyldir óháð lengd ef þeir eru staðsettir á verndarsvæðum utan þéttbýlis. Jarðstrengir á verndarsvæðum í þéttbýli eru þannig ekki tilkynningarskyldir.

Ég, sem framsögumaður málsins, þakka þær ábendingar sem okkur hafa borist um þessi mál. Þessi heildarendurskoðun er á lokametrunum og það er gott að fá þessar viðbætur hér. Ég vísa að öðru leyti í nefndarálit og breytingartillöguna sem þar er að finna. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem tilgreindar eru þar.