vextir og verðtrygging.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti og töluvert af umsögnum. Í frumvarpinu er kveðið á um að hámarkstími verðtryggðra jafngreiðslulána til neytenda verði 25 ár en þó verði áfram heimilt að veita slík fasteignalán til lengri tíma en 25 ára að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Lágmarkstími verðtryggðra jafngreiðslulána til neytenda verði hins vegar tíu ár í stað fimm. Í ljósi þeirra umsagna sem bárust um málið leggur meiri hlutinn til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar þar sem það sæti skoðun í ljósi framkominna athugasemda.
Undir nefndarálitið rita Þórarinn Ingi Pétursson framsögumaður, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Smári McCarthy.