fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
Forseti. Frumvarp þetta á rætur sínar að rekja til vinnu sem stjórnmálaflokkarnir hafa staðið í býsna lengi, mánuðum saman, og hefur lotið að því að setja umgjörð um starfsemi þeirra, um hvernig þeir geti nýtt sér ýmsar upplýsingar og beitt sér í kosningabaráttu. Skemmst er frá því að segja að sú vinna skilaði sér í sameiginlegum frumvarpsdrögum sem komu hingað inn og endaði svo sem frumvarp hér í þingsal og barst svo til okkar í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Við fengum á fund okkar töluvert af gestum og fórum yfir umsagnir. Umsagnaraðilar voru almennt ánægðir með efni frumvarpsins og telja það fela í sér mikilvæg skref til að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi stjórnmálanna. Það eru nefnilega býsna stór mál sem liggja hér undir og athugasemdir við málið komu fyrst og fremst frá Persónuvernd.
Mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka hv. formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Jóni Þór Ólafssyni, fyrir gott samstarf við að finna lausnir á því hvernig við gætum komið til móts við þær athugasemdir og haldið um leið þeirri samstöðu í gegnum þetta ferli sem hefur einkennt það frá upphafi. Við áttum mjög gott samstarf, ég og hv. formaður, um það og um leið þakka ég nefndinni allri fyrir það hvernig við unnum að þessu máli.
Forseti. Mig langar í örfáum orðum að fara yfir þessar athugasemdir Persónuverndar því að það er býsna mikilvægt að við séum með það allt á hreinu við vinnslu persónuupplýsinga um almenning. Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að sett verði ný grein, 2. gr. b, í lög nr. 162/2006, sem m.a. kveði á um að stjórnmálasamtökum verði óheimilt að nýta persónusnið til að beina að einstaklingum efni og auglýsingum í tengslum við stjórnmálabaráttu sem fela í sér hvatningu um að nýta ekki kosningarréttinn. Í greinargerð með frumvarpinu segir að með þessu sé leitast við að stemma stigu við hættu á tilteknum tilburðum sem á undanförnum árum hefur orðið vart við, einkum á samfélagsmiðlum, í tengslum við kosningar erlendis og felast í tilraunum til að hafa óæskileg áhrif á niðurstöður kosninga með sérmiðaðri vinnslu persónuupplýsinga. Við höfum öll séð, forseti, af þessu fréttir og lesið.
Í umsögn Persónuverndar kemur fram að ákvæði frumvarpsins banni aðeins stjórnmálasamtökum að nýta persónusnið til að beina að einstaklingum efni og auglýsingum í tengslum við stjórnmálabaráttu sem fela í sér hvatningu um að nýta ekki kosningarréttinn. Ákvæðið komi því ekki í veg fyrir að stjórnmálasamtök nýti persónusnið í því skyni að hafa óeðlileg áhrif á niðurstöður kosninga með því að beina að einstaklingum efni og auglýsingum sem innihalda hvatningu um að kjósa tiltekin stjórnmálasamtök. Leggur Persónuvernd til breytingu þess efnis að óheimilt verði að nýta persónusnið í því skyni að hafa óeðlileg áhrif á niðurstöður kosninga með því að beina að einstaklingum efni og auglýsingum í tengslum við stjórnmálabaráttu sem innihalda hvatningu um að kjósa tiltekin stjórnmálasamtök, án þess að virt séu ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, eða hvatningu um að nýta ekki kosningarréttinn.
Að mati nefndarinnar myndi sú breyting draga úr fortakslausu banni þar sem gerð yrði krafa um að persónusnið sé ekki notað í því skyni að hafa óeðlileg áhrif á niðurstöður kosninga. Skilyrði um óeðlileg áhrif býður upp á mismunandi túlkun og auk þess er viðbúið að afar erfitt verði að sanna slíkan ásetning.
Nefndin hafði samráð við Persónuvernd um frekari útfærslu ákvæðisins og leggur til breytingu þannig að skýrt komi fram að notkun persónusniðs í stjórnmálabaráttu skuli samrýmast lýðræðislegum gildum. Með því er vísað til hinnar almennu sanngirniskröfu sem er að finna í lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Nefndin vill ítreka að öll notkun persónusniðs í stjórnmálabaráttu þarf að uppfylla skilyrði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Mikilvægt er að stjórnmálasamtök umgangist þá tækni sem samfélagsmiðlar bjóða upp á af ábyrgð og að notkun stjórnmálasamtaka á persónuupplýsingum sé í samræmi við persónuverndarlög. Með því ættu þeir að geta gegnt uppbyggilegu og góðu hlutverki við miðlun upplýsinga og ættu sem slíkir að geta ýtt undir lýðræðislega þátttöku og bætt getu kjósenda til að taka ákvarðanir á grundvelli réttra upplýsinga.
Forseti. Áður en ég klára að fara yfir það sem nefndin fjallaði um langar mig að hoppa beint í þá breytingartillögu sem nefndin gerir í anda þeirra athugasemda Persónuverndar sem ég hef verið að fara yfir. Nefndin leggur til að við 3. tölul. b-liðar 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:
„Skal þess að öðru leyti gætt að nýting persónusniða samrýmist lýðræðislegum gildum.“
Með fyrrgreindri viðbót myndi þá umrætt ákvæði frumvarpsins hljóða svo:
„Skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá er stjórnmálasamtökum að auki óheimilt að nýta persónusnið til að beina að einstaklingum efni og auglýsingum í tengslum við stjómmálabaráttu sem fela í sér hvatningu um að nýta ekki kosningarréttinn. Skal þess að öðru leyti gætt að nýting persónusniða samrýmist lýðræðislegum gildum.“
Þetta er stóra breytingin sem mig langaði til að vekja athygli á því að hér fór af stað mikil og góð vinna með Persónuvernd um að finna þessu réttan farveg.
Annað atriði sem komið er inn á í nefndarálitinu og nefndin fjallaði um var auðkenningarskyldan. Að mati nefndarinnar kunna rök að hníga að því að auðkenningarskyldan skuli taka til íbúakosninga. Hins vegar hyggst samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hefja vinnu við endurskoðun reglna sem gilda eiga um íbúakosningar sveitarfélaga. Nefndin telur því ekki rétt að leggja til breytingu þess efnis að auðkenningarskyldan taki til íbúakosninga að svo stöddu.
Hvað varðar stjórnmálasamtakaskrá er með frumvarpinu lag til að ríkisskattstjóra verði falið að starfrækja sérstaka stjórnmálasamtakaskrá og að skráin verði birt almenningi á vef Stjórnarráðs Íslands ásamt tilteknum upplýsingum. Í umsögn Skattsins kemur fram að ríkisskattstjóri leggi þann skilning í ákvæðið að skráningarupplýsingar úr stjórnmálasamtakaskrá verði birtar á vef ríkisskattstjóra með sama hætti og hjá öðrum félögum en um víðtækari birtingu verði að ræða á vef Stjórnarráðs Íslands þar sem gögn að baki skráningu verði einnig birt. Birting upplýsinga sem miðlað er frá Skattinum til Stjórnarráðsins krefjist ákveðinna tæknilegra ráðstafana og greiningar á því hvaða tæknilegu framkvæmdir koma þar til skoðunar og hver yrði kostnaðurinn þessu meðfylgjandi. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að ljóst sé að þetta verkefni muni óhjákvæmilega hafa í för með sér aukin fjárútlát fyrir ríkisskattstjóra.
Að mati nefndarinnar er hér fyrst og fremst verið að gera kröfu til þess að fyrir liggi skriflegar lágmarksupplýsingar um starfsemi stjórnmálasamtaka, svo sem um þá sem standa að samtökunum og um innra skipulag þeirra, þar á meðal hvaða flokkseiningar starfa innan þeirra og hlutverk þeirra.
Við teljum að þessu sé mætt í greinargerðinni nema við tökum undir þau sjónarmið Skattsins, sem koma fram í umsögn, að stjórnmálasamtökum sem skráð eru í fyrirtækjaskrá og uppfylla nú þegar þau skilyrði sem gerð eru til skráningar í stjórnmálasamtakaskrá verði gert kleift að breyta skráningu sinni á þann veg að þau færist af fyrirtækjaskrá og yfir á stjórnmálasamtakaskrá.
Í umsögn Skattsins er vakin athygli á því að í frumvarpinu er ekki fjallað um kæruheimild stjórnmálasamtaka komi til þess að ríkisskattstjóri felli skráningu þeirra á stjórnmálasamtakaskrá úr gildi. Nauðsynlegt sé að frumvarpið fjalli nánar um kæruheimild og að skýrt komi fram hvert ákvörðun um afskráningu sé kæranleg. Nefndin telur ábendingu Skattsins vera sjálfsagða og leggur til breytingu þess efnis.
Að auki leggur nefndin til tvær breytingar til að bregðast við athugasemdum Þjóðskrár Íslands og dómsmálaráðuneytis. Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu á orðunum „rafrænan aðgang að kjörskrá“. Í öðru lagi er um að ræða breytingu að beiðni dómsmálaráðuneytis um að k-liður 3. gr. öðlist ekki gildi fyrr en 1. janúar 2022.
Að þessu sögðu leggur nefndin til, forseti, að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem finna má í nefndarálitinu og ég hef að einhverju leyti rakið hér. Ég hef sérstaklega vakið athygli á breytingunni sem nefndin gerir í samráði við Persónuvernd til að mæta sjónarmiðum þeirra en að sjálfsögðu allra hinna líka.
Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið í samræmi við lög um þingsköp Alþingis. Hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir áheyrnarfulltrúi er samþykk áliti þessu. Undir álitið skrifa, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Jón Þór Ólafsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Andrés Ingi Jónsson, Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason, Þorsteinn Sæmundsson og Þórarinn Ingi Pétursson. Sú samstaða sem hefur fylgt málinu frá upphafi í vinnu stjórnmálaflokkanna hefur þannig haldið áfram í þessu nefndaráliti og inn í 2. umr. Við leggjum til að málið verði samþykkt og því vísað til 3. umr.