151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

24. mál
[21:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að hætta við að flytja mig hreppaflutningum á milli kjördæma. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar í þessu máli. Þingsályktunartillaga þessi byggist á tæplega sjö ára gamalli stöðuskýrslu um einföldun regluverks sem ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur skilaði í september árið 2014. Síðan hafa miklar breytingar orðið og stjórnvöld unnið skipulega að einföldun regluverks. Þeirri vinnu er ekki lokið. Með hliðsjón af framansögðu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði felld. Undir álitið rita eftirtaldir hv. þingmenn: Óli Björn Kárason, formaður nefndarinnar, Ólafur Þór Gunnarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson.

(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmann velvirðingar á því að hafa farið illilega mannavillt og kjördæmavillt. Honum bárust óljósar upplýsingar um efnið.)