tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Herra forseti. Ég er ekki að tala fyrir þessu máli í fyrsta skipti, hef reyndar barist fyrir því núna árum saman að lagt verði í að einfalda regluverk, draga úr bákninu á Íslandi. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er þingmannamál og fyrir vikið kannski ekki líklegt til að hljóta hljómgrunn hjá meiri hlutanum. En ég verð að geta þess að mér þykir nefndarálit meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar aumkunarvert. Þar er því haldið fram að þetta byggi á gömlu máli um opinberar eftirlitsreglur sem skilað var í september 2014. Vissulega er það rétt að þetta byggir á máli sem var unnið og skilað árið 2014, reyndar á fleiri málum sem skilað var það sama ár. En það að þetta skuli hafa beðið það lengi getur nú varla verið ástæða til að hafna málinu nú í ljósi þess að það hefur í rauninni ekkert gerst — ekkert gerst — sem heitið getur frá þeim tíma.
Árið 2013 tók við ný ríkisstjórn sem einsetti sér að takast á við báknið, að draga úr reglubyrði og einfalda fólki lífið og fyrirtækjum rekstur. Lagt var í stórátak til þess, vel undirbúið, sem skilaði sér m.a. í greinargerð þar sem línurnar voru lagðar um framhaldið og teknar ákvarðanir um hluti á borð við að þegar inn kæmi eitt íþyngjandi regluverk, eða ein greinargerð eða regla sem myndi íþyngja fyrirtækjum, þá færu tvær út og línurnar lagðar um hvernig rekstur opinberra stofnana yrði í framhaldinu. Það var líka tekin ákvörðun um að hætta að hækka sjálfkrafa gjöld á almenning og fyrirtæki. Fjölmargt annað mætti nefna því að þetta var heildaráætlun um hvernig við myndum loksins ná að hemja báknið.
Þetta fór ágætlega af stað á meðan sú ríkisstjórn sem þetta vann starfaði. En eftir að hún fór frá hefur afskaplega lítið verið gert. Við tók ríkisstjórn árið 2016 og svo aftur árið 2017, og sú ríkisstjórn sem nú er að skila af sér hefur skilað nokkrum þingmálum sem hafa verið sögð til þess ætluð að draga úr bákninu, að minnka regluverkið. En þegar betur er að gáð hafa þessi mál fyrst og fremst snúist um að fara út með ruslið; henda reglugerðum sem ekki voru lengur virkar, voru ekki lengur í notkun, sem er í sjálfu sér ágætt, herra forseti. En það þarf svo miklu meira til að ná árangri í baráttunni við vöxt báknsins sem hefur aldrei verið stærra en nú.
Þess vegna segi ég að það er aumkunarvert að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar skuli leggja til að þessi tillaga verði felld, að þessu máli verður hafnað á þeim forsendum að það byggi á vinnu sem fór af stað árið 2014. Það ætti frekar að vera röksemd fyrir því að þetta væri orðið aðkallandi, væri löngu tímabært. En nei, þessari kerfisstjórn líður vel í núverandi fyrirkomulagi og lítur á það að þetta hafi beðið þetta lengi sem ástæðu fyrir því að halda áfram að láta þetta mikilvæga verkefni bíða.
Þess vegna segi ég, herra forseti: Þetta verkefni var orðið brýnt árið 2013. Það er enn þá brýnna nú. Vandinn hefur stækkað. En hér er boðið upp á möguleika til að taka á þeim vanda, möguleika sem er byggður á vinnu stjórnkerfisins, sérfræðinga fyrir utan stjórnkerfið, ráðgjafa sem lögðu til lausnir á þessum vanda. En vilji ríkisstjórnarinnar er skýr: Það á að fela þetta, grafa þetta og halda áfram á sömu braut. Kerfisstjórnin, sem við heyrum í fréttum í dag að ætlar að halda áfram eftir þetta kjörtímabil, hefur gert vilja sinn ljósan í nokkrum málum varðandi hálendisþjóðgarð og núverandi bákn: Áfram skal haldið, báknið skal stækka. En í kosningunum hafa menn tækifæri til að velja aðra leið, fá menn tækifæri til að klára þá vinnu sem hefur nú beðið í sjö ár.