græn atvinnubylting.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um græna atvinnubyltingu. Hún er lögð fram með það að markmiði að fjölga störfum, örva eftirspurn og styðja við loftslagsvæna verðmætasköpun á Íslandi. Tillagan er jafnframt lögð fram með tilliti til alþjóðlegra loftslagsskuldbindinga Íslands á tímum hamfarahlýnunar og í ljósi efnahagssamdráttar, sögulegs fjöldaatvinnuleysis og framleiðsluslaka vegna kórónuveirufaraldursins. Með grænu atvinnubyltingunni er m.a. lagt til að stofnaður verði grænn fjárfestingarsjóður með 5 milljarða kr. í stofnfé, sem styðji við loftslagsvæna atvinnuuppbyggingu og grænan hátækniiðnað. Orkuskiptum verði hraðað, ráðist verði í stuðning við grænmetisframleiðslu og skipulega uppbyggingu iðngarða, ráðist verði í kraftmikið skógræktarátak og stóreflingu almenningssamgangna um allt land. Með þessu væri hægt að slá tvær flugur í einu höggi: Örva eftirspurn og atvinnu en um leið skapa grænna og sjálfbærara samfélag á Íslandi og greiða leiðina að metnaðarfyllri loftslagsmarkmiðum á næstu árum. Minni hluti hv. efnahags- og viðskiptanefndar telur að markaðurinn muni aldrei einn og sér leysa þetta stóra vandamál sem við stöndum frammi fyrir sem er hlýnun jarðar og verður okkar stærsta verkefni og er okkar stærsta verkefni, bæði okkar kynslóðar og sömuleiðis framtíðarkynslóða. Til þess að stíga niður styrkari fæti þurfi samstarf hins opinbera og einkageirans og ekki síst pólitíska forystu til að leiða umbreytingarnar.
Í nefndarálitinu er farið nánar í þætti er varða græna fjárfestingarsjóðinn og stofnun hans og metnaðarfyllri loftslagsmarkmið. Gert er ráð fyrir að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra hafi forgöngu um að mótuð verði ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem geri ráð fyrir 60% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 miðað við árið 2005.
Síðan er það efling almenningssamgangna sem er einn stærsti liðurinn í því að stuðla að markmiðum um kolefnishlutleysi, að því verði náð. Síðan er það hröðun orkuskipta en minni hluti nefndarinnar telur brýnt að ráðast í markvissar aðgerðir til að hraða orkuskiptum á láði og legi. Stutt verði enn frekar við uppbyggingu rafhleðslustöðva um allt land með það fyrir augum að nýskráningu bensín- og dísilbíla verði hætt frá og með árinu 2025 enda sé það metnaðarfyllra en að miða við árið 2030 eins og nú er gert.
Síðan er hér nánari útlistun á stórsókn í nýsköpun og þróun og uppbyggingu iðngarða. Minni hlutinn telur mikilvægt að stórauka rannsóknir og þróun hérlendis á sviði framleiðslu og nýtingar á endurnýjanlegu eldsneyti. Sömuleiðis sé það nauðsynlegur hluti af grænni atvinnubyltingu að skapa umhverfi sem nýtist til fjölbreyttrar atvinnu- og verðmætasköpunar. Gera þurfi áætlun um að skipaður verði starfshópur um skipulega uppbyggingu iðngarða á Íslandi þar sem virði hreinnar orku er hámarkað, svo sem til uppbyggingar í matvælaiðnaði, lífrænni eldsneytisframleiðslu, líftækni og garðyrkju. Mikilvægt sé að regluverkið sé gagnsætt og skýrt. Við í minni hlutanum teljum ljóst að úrbætur á þessu sviði muni hjálpa hagaðilum í þróun nýrra umhverfisvænna atvinnutækifæra og leggjum til að málið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu á dagsetningu: Í stað dagsetningarinnar 1. maí 2021 í tillögunni komi dagsetningin 1. janúar 2022.
Undir nefndarálitið rita sú sem hér stendur og hv. þingmenn Jón Steindór Valdimarsson og Smári McCarthy.