151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

brottfall laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.

558. mál
[22:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með frávísunartillögu um frumvarp til laga um brottfall laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, bann við leit og vinnslu jarðefnaeldsneytis. Nefndarálitið er frá meiri hluta atvinnuveganefndar. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið þrjár umsagnir, frá Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Ungum umhverfissinnum.

Með frumvarpinu er lagt til að felld verði brott lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001, og með því verði leit og vinnsla jarðefnaeldsneytis bönnuð hér á landi. Í ákvæði til bráðabirgða er lagt til að ráðherra geri tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar séu í kjölfar samþykktar frumvarpsins. Meiri hlutinn telur betur fara á því, ef vilji er til að setja bann við leit og vinnslu jarðefnaeldsneytis, að málið verði skoðað heildstætt og frumvarp lagt fram sem feli í sér allar nauðsynlegar breytingar á lögum. Þar sem ekki stendur yfir leit eða vinnsla jarðefnaeldsneytis er svigrúm til að vinna málið frekar. Meiri hlutinn áréttar þó mikilvægi þess að Ísland grípi til markvissra og ákveðinna aðgerða í baráttunni gegn loftslagsbreytingum í samræmi við metnaðarfullan stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og markmiðið um kolefnishlutlaust Ísland eigi síðar en árið 2040.

Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari skoðunar og vinnslu.

Undir þetta ritar sú sem hér stendur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, og hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson.