151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.

81. mál
[22:57]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég er hér komin af því ánægjulega tilefni að fá að reifa og fara yfir nefndarálit allsherjar- og menntamálanefndar með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.

Málið var lagt fram var af Hönnu Katrínu Friðriksson, sem er fyrsti flutningsmaður þessa máls. Fyrir allsherjarnefnd hefur verið fjallað um málið og bárust umsagnir m.a. frá Íþrótta- og Ólympíusambandinu en líka Knattspyrnusambandi Íslands, UMFÍ og Hrafnhildi Lúthersdóttur.

Tillagan felur í aðalatriðum í sér að mennta- og menningarmálaráðherra verði falið að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum. Samhliða þessari tillögu fjallaði nefndin um tillögu til þingsályktunar um launasjóð íslensks afreksíþróttafólks, samanber 116. mál á yfirstandandi þingi.

Samhljómur var á meðal umsagnaraðila um mikilvægi þess að styðja afreksfólk í íþróttum, og það var ánægjulegt. Bent var á að mikilvægt væri að frekari stefnumótun stjórnvalda færi heim og saman við þær áherslur sem íþróttahreyfingin setti fram á Íþróttaþingi ÍSÍ. Jafnframt var bent á íþróttastefnu ríkisins frá maí 2019 sem fæli í sér mikla samvinnu og samráð innan íþróttahreyfingarinnar. Þá var því fagnað hversu mjög stjórnvöld beindu sjónum sínum að íþróttastarfsemi hér á landi um þessar mundir.

Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og beinir því jafnframt til ráðuneytisins að horft verði til áðurnefndrar þingsályktunartillögu um launasjóðinn í þeirri stefnumótunarvinnu sem hér er verið að leggja til.

Nefndin leggur til að þingsályktunartillagan verði samþykkt efnislega óbreytt, en með eftirfarandi breytingu sem varðar dagsetningu: Í stað dagsetningarinnar „1. júní 2021“ komi: 1. júní 2022.

Það er skemmtilegt frá því að segja að undir þetta álit skrifa allir nefndarmenn. Það eru, auk framsögumanns, hv. þingmenn Páll Magnússon, formaður nefndarinnar, Guðmundur Andri Thorsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgir Ármannsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Þorsteinn Sæmundsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.